Skráning í
áfangapróf
Áfangapróf í
klassískri tónlist
Áfangapróf í
rytmískri tónlist
Um Prófanefnd
tónlistarskóla
Information
in english

Undirbúningur
áfangaprófs

Um störf
prófdómara

Framkvæmd
áfangaprófs
Einkunnagjöf og
prófskírteini
Prófreglur
Prófþættir í
hljóðfæraprófum
Viðmiðanir fyrir
einkunnagjöf á
hljóðfæraprófum
Tónfræðapróf

Prófkröfur í
óundirbúnum
nótnalestri í
trompetleik
(pdf-skjal)

 

Trompet

Grunnpróf

Verkefni og prófkröfur

Á grunnprófi í trompetleik skal nemendi leika þrjú verk og eina æfingu. Aðrir prófþættir eru tónstigar og brotnir hljómar, val og óundirbúinn nótnalestur, auk þess sem gefið er fyrir heildarsvip prófsins.

Miða skal við að heildarpróftími á grunnprófi í trompetleik fari ekki fram yfir 30 mínútur. Á prófinu skal nemandi að minnsta kosti flytja eitt verk utanbókar samkvæmt prófþætti 1 eða æfingu samkvæmt prófþætti 2.

Prófþættir eru þessir:

  1. Þrjú ólík verk (15 einingar hvert) í samræmi við kröfur greinanámskrár.

  2. Æfing (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.

  3. Tónstigar og hljómar (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.

  4. Val (10 einingar). Nemandi velji eitt eftirtalinna viðfangsefna:

    1. Spinni einradda út frá gefnu upphafi, hljómferli eða lagi, með eða án undirleiks.

    2. Leiki frumsamið verk eða eigin útsetningu.

    3. Leiki stutt alþýðulag eða þjóðlag sem lært hefur verið eftir eyra.

  5. Óundirbúinn nótnalestur (10 einingar).

  6. Heildarsvipur (5 einingar).

Miðpróf

Verkefni og prófkröfur

Á miðprófi í trompetleik skal nemendi leika þrjú verk og eina æfingu. Aðrir prófþættir eru tónstigar og brotnir hljómar, val og óundirbúinn nótnalestur, auk þess sem gefið er fyrir heildarsvip prófsins.

Miða skal við að heildarpróftími á miðprófi í trompetleik fari ekki fram yfir 45 mínútur. Á prófinu skal nemandi að minnsta kosti flytja eitt verk utanbókar samkvæmt prófþætti 1 eða æfingu samkvæmt prófþætti 2.

Prófþættir eru þessir:

  1. Þrjú ólík verk (15 einingar hvert) í samræmi við kröfur greinanámskrár.

  2. Æfing (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.

  3. Tónstigar og hljómar (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.

  4. Val (10 einingar). Nemandi velji eitt eftirtalinna viðfangsefna:

    1. Leiki verk að eigin vali af sambærilegri þyngd og önnur miðprófsverkefni.

    2. Spinni einradda út frá gefnu upphafi, hljómferli eða lagi með eða án undirleiks.

    3. Leiki frumsamið verk eða eigin útsetningu.

  5. Óundirbúinn nótnalestur og tónflutningur (10 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.

  6. Heildarsvipur (5 einingar).

Framhaldspróf

Á framhaldsprófi í trompetleik skal nemandi leika þrjú verk, eina æfingu og útdrætti úr hljómsveitarverkum. Aðrir prófþættir eru tónstigar og brotnir hljómar, val og óundirbúinn nótnalestur, auk þess sem gefið er fyrir heildarsvip prófsins.

Miða skal við að heildarpróftími á framhaldsprófi í trompetleik fari ekki fram yfir 60 mínútur. Á prófinu skal nemandi að minnsta kosti flytja eitt verk utanbókar samkvæmt prófþætti 1 eða æfingu samkvæmt prófþætti 2.

Prófþættir eru þessir:

  1. Þrjú ólík verk (12 einingar hvert) í samræmi við kröfur greinanámskrár.

  2. Æfing (12 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.

  3. Útdrættir úr hljómsveitarverkum (12 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.

  4. Tónstigar og hljómar (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.

  5. Val (10 einingar). Nemandi velji eitt eftirtalinna viðfangsefna:

    1. Leiki verk að eigin vali af sambærilegri þyngd og önnur framhaldsprófsverkefni.

    2. Leiki samleiksverk þar sem hann gegnir veigamiklu hlutverki.

    3. Leiki tónverk á annað hljóðfæri úr sömu fjölskyldu og aðalhljóðfæri.

  6. Óundirbúinn nótnalestur og tónflutningur (10 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.

  7. Heildarsvipur (5 einingar)

Tónleikar

Að loknu framhaldsprófi í trompetleik skal nemandi leika 30-60 mínútna langa efnisskrá á tónleikum innan eða utan skólans. Fyrir frammistöðu á tónleikunum er gefin umsögn en ekki einkunn. Ekki er nauðsynlegt að halda tónleikana á sama skólaári og hljóðfæraprófið fer fram. Séu prófið og tónleikarnir haldnir á sama skólaári er heimilt að nota alla efnisskrá prófsins á tónleikunum. Fari tónleikar fram síðar skal að minnsta kosti helmingur efnisskrárinnar endurnýjaður. Gæta þarf þess að efnisskrá sé fjölbreytt og vel saman sett.

 

Prófþættir í einstökum greinum

Hljómborðs-
hljóðfæri

Píanó
Semball
Orgel
Harmonika

Málmblásturs-
hljóðfæri

Trompet
Horn
Althorn
Básúna
Barítónhorn
Túba

Strokhljóðfæri

Fiðla
Víóla
Selló
Kontrabassi

Tréblásturs-
hljóðfæri

Blokkflauta
Þverflauta
Óbó
Klarínetta
Fagott
Saxófónn

Aðrar greinar

Ásláttarhljóðfæri
Einsöngur
Gítar
Harpa

 

Prófanefnd tónlistarskóla