K L A S S Í S K T Ó N L I S T
Prófþættir í klassískri tónlist
Harmonika
Grunnpróf
Á grunnprófi í harmonikuleik skal nemendi leika þrjú
verk og eina æfingu. Aðrir prófþættir eru tónstigar og
hljómar, val og óundirbúinn nótnalestur, auk þess sem
gefið er fyrir heildarsvip prófsins.
Miða skal við að heildarpróftími á grunnprófi í
harmonikuleik fari ekki fram yfir 30 mínútur. Á prófinu
skal nemandi að minnsta kosti flytja eitt verk utanbókar
samkvæmt prófþætti 1 eða æfingu samkvæmt prófþætti
2.
Prófþættir eru þessir:
- Þrjú ólík verk (15 einingar hvert) í samræmi
við kröfur greinanámskrár.
- Æfing (15 einingar) í samræmi við kröfur
greinanámskrár.
- Tónstigar og hljómar (15 einingar) í samræmi
við kröfur greinanámskrár.
- Val (10 einingar). Nemandi velji eitt
eftirtalinna viðfangsefna:
- Spinni einradda út frá gefnu upphafi, hljómferli
eða lagi, með eða án undirleiks.
- Leiki frumsamið verk eða eigin útsetningu.
- Leiki stutt alþýðulag eða þjóðlag sem lært
hefur verið eftir eyra.
- Óundirbúinn nótnalestur (10 einingar).
- Heildarsvipur (5 einingar).
Dæmi um prófverkefni á grunnprófi
Í námskrá eru gefin eftirfarandi dæmi um prófverkefni á grunnprófi. Dæmunum er ætlað að skilgreina þyngdarstig prófsins. Fullt eins má velja önnur verkefni af sambærilegri þyngd.
Dæmi um tónverk – harmonika með tónbassa
- Menúett í g-moll BWV Anhang 115 – Úr: Notenbüchlein für Anna Magdalena, eignað Christian Pezold
- A la claire Fontaine – Úr: Surdin (útg.): Canadian Folk Songs, Grade II
- Torbjörn Lundquist: Allerlei nr. 3
- Béla Bartók: Pastorale – Úr: Mikrokosmos, 1. hefti
- Anders Grøthe: Nr. 7 – Úr: 20 norske folkemelodier
- Lars Holm: Allegro Úr: Music-box 1
Dæmi um æfingar – harmonika með tónbassa
- Æfing nr. 2 – Úr: Czerny/Abbott: Exercices gradues pour l’accordion, 2. hefti
- Æfing nr. 5 – Úr: Harris, Eddie: Sol-Fah patterns 1
Dæmi um tónverk – harmonika með hljómbassa
- Menúett í g-moll BWV Anhang 115 – Úr: Notenbüchlein für Anna Magdalena, eignað Christian Pezold
- Santa Lucia – Úr: Palmer/Hughes: Accordion Course 3
- Lag í C-dúr, nr. 24 – Úr: Eisenmann: Steps 1b
- Prelude – Úr: Holm: Spela mera dragspel
- Menúett, nr. 76 – Úr: Eisenmann: Schulwerk, 2. hefti
- Comedians dance – Úr: Palmer/Huges: Accordion Course 4
Dæmi um æfingar – harmonika með hljómbassa
- Æfing nr. 3 – Úr: Abbottt: 26 Easy and Progressive Studies
- Æfing nr. 6 – Úr: Czerny, C./Ahvenainen: 24 Etudes
Miðpróf
Á miðprófi í harmonikuleik skal nemendi leika þrjú
verk og eina æfingu. Aðrir prófþættir eru tónstigar og
hljómar, val og óundirbúinn nótnalestur, auk þess sem
gefið er fyrir heildarsvip prófsins.
Miða skal við að heildarpróftími á miðprófi í
harmonikuleik fari ekki fram yfir 45 mínútur. Á prófinu
skal nemandi að minnsta kosti flytja eitt verk utanbókar
samkvæmt prófþætti 1 eða æfingu samkvæmt prófþætti
2.
Prófverkefni á miðprófi skulu leikin á harmoniku með
tónbassa að öðru leyti en því að heimilt er að leika
eitt tónverk sem skrifað er fyrir harmoniku með hljómbassa.
Prófþættir eru þessir:
- Þrjú ólík verk (15 einingar hvert) í samræmi
við kröfur greinanámskrár.
- Æfing (15 einingar) í samræmi við kröfur
greinanámskrár.
- Tónstigar og hljómar (15 einingar) í samræmi
við kröfur greinanámskrár.
- Val (10 einingar). Nemandi velji eitt
eftirtalinna viðfangsefna:
- Leiki verk að eigin vali af sambærilegri þyngd og
önnur miðprófsverkefni.
- Spinni einradda út frá gefnu upphafi, hljómferli
eða lagi með eða án undirleiks.
- Leiki frumsamið verk eða eigin útsetningu.
- Óundirbúinn nótnalestur (10 einingar).
- Heildarsvipur (5 einingar).
Dæmi um prófverkefni á miðprófi
Í námskrá eru gefin eftirfarandi dæmi um prófverkefni á miðprófi. Dæmunum er ætlað að skilgreina þyngdarstig prófsins. Fullt eins má velja önnur verkefni af sambærilegri þyngd.
Dæmi um tónverk
- Domenico Scarlatti: Sónata í e-moll K. 98, L. 325
- Wolfgang Jacobi: Nr. 8 – Úr: 10 Polyphone Stücke nach spanischen Volksliedern
- Wladislaw Solotarjow: Kindersuite 1
- Louis-Claude Daquin: Le coucou
- Petr Fiala: Song – Úr: For Children
- Heikki Valpola: Clowns
Dæmi um æfingar
- Æfing nr. 4 – Úr: Czerny/Abbott: Exercices gradues pour l’accordion, 2. hefti
- Etude IV – Úr: Bertini, Henri: 25 Easy Studies op. 100
Framhaldspróf
Á framhaldsprófi í harmonikuleik skal nemandi leika þrjú
verk og eina æfingu. Aðrir prófþættir eru tónstigar og
hljómar, val og óundirbúinn nótnalestur, auk þess sem
gefið er fyrir heildarsvip prófsins.
Miða skal við að heildarpróftími á framhaldsprófi í
harmonikuleik fari ekki fram yfir 60 mínútur. Á prófinu
skal nemandi að minnsta kosti flytja eitt verk utanbókar
samkvæmt prófþætti 1 eða æfingu samkvæmt prófþætti
2.
Prófþættir eru þessir:
- Þrjú ólík verk (15 einingar hvert) í samræmi
við kröfur greinanámskrár.
- Æfing (15 einingar) í samræmi við kröfur
greinanámskrár.
- Tónstigar og hljómar (15 einingar) í samræmi
við kröfur greinanámskrár.
- Val (10 einingar). Nemandi velji eitt
eftirtalinna viðfangsefna:
- Leiki verk að eigin vali af sambærilegri þyngd og
önnur framhaldsprófsverkefni.
- Leiki samleiksverk þar sem hann gegnir veigamiklu
hlutverki.
- Leiki tónverk sem skrifað er fyrir harmoniku með
tónbassa.
- Óundirbúinn nótnalestur (10 einingar).
- Heildarsvipur (5 einingar)
Dæmi um prófverkefni á framhaldsprófi
Í námskrá eru gefin eftirfarandi dæmi um prófverkefni á framhaldsprófi. Dæmunum er ætlað að skilgreina þyngdarstig prófsins. Fullt eins má velja önnur verkefni af sambærilegri þyngd.
Dæmi um tónverk
- Johann Sebastian Bach: Inventio 4 – Úr: Inventionen und Sinfonien [Urtext]
- Wladislaw Solotarjow: Sónata nr. 2
- Vaclav Trojan: Die zertrümmerte Kathedrale
- Domenico Scarlatti: Sónata í C-dúr K. 159, L. 104 [Urtext]
- Wolfgang Jacobi: Interméde
- Niels Viggo Bentzon: In the Zoo
Dæmi um æfingar
- John Gould: Shake
- Æfing nr. 2 – Úr: Czerny/Abbott: Exercices gradues pour l’accordion, 4. hefti
Tónleikar
Að loknu framhaldsprófi í harmonikuleik skal nemandi
leika 30-60 mínútna langa efnisskrá á tónleikum innan eða
utan skólans. Fyrir frammistöðu á tónleikunum er gefin
umsögn en ekki einkunn. Ekki er nauðsynlegt að halda tónleikana
á sama skólaári og hljóðfæraprófið fer fram. Séu prófið
og tónleikarnir haldnir á sama skólaári er heimilt að
nota alla efnisskrá prófsins á tónleikunum. Fari tónleikar
fram síðar skal að minnsta kosti helmingur efnisskrárinnar
endurnýjaður. Gæta þarf þess að efnisskrá sé fjölbreytt
og vel saman sett.
>