K L A S S Í S K T Ó N L I S T
Hér að neðan er að finna prófreglur samkvæmt ákvæðum aðalnámskrár tónlistarskóla, bæði almennar prófreglur, prófreglur sem gilda um hljóðfærapróf og prófreglur sem gilda um tónfræðapróf.
1.
Kennarar bera faglega ábyrgð á undirbúningi nemenda og á
því að meta hvenær þeir eru tilbúnir til að þreyta áfangapróf
í hljóðfæraleik og tónfræðum.
2.
Það ræðst eingöngu af heildareinkunn allra prófþátta
í hljóðfæraleik og tónfræðum hvort nemandi stenst próf
eða ekki. Til að standast áfangapróf þarf nemandi að ná
samtals 60 einingum í hljóðfæraleik, sem samsvarar lágmarkseinkunn
6,0, og jafnframt að hljóta sömu lágmarkseinkunn í tónfræðagreinum.
(Til að standast framhaldspróf í tónfræðagreinum þarf lágmarkseinkunnina
6,0 í hverri grein, sjá nánar í námskrá tónfræðagreina.)
3.
Kennurum ber að útskýra fyrir nemendum og foreldrum/ forráðamönnum
hvað niðurstöður hljóðfæra- og tónfræðaprófa
merkja.
4.
Komi til ágreinings um einkunnagjöf eiga nemandi og
foreldri/forráðamaður rétt á að fá ítarlegar útskýringar
á forsendum og niðurstöðum mats, bæði í hljóðfæra-
og tónfræðaprófum.
1.
Við val prófverkefna skal kennari gæta þess að lengd prófsins
sé í samræmi við tímamörk aðalnámskrár. Miðað er við
að prófverkefni séu leikin til enda.
2.
Kennari skal gæta þess að þyngd prófverkefna sé í samræmi
við kröfur námskrár.
3.
Fylgja skal fyrirmælum námskrár um fjölda, inntak og
umfang prófþátta. Þannig getur t.d. eitt langt verk ekki
komið í stað tveggja styttri og einstakir kaflar sama tónverks
ekki talist aðskildir prófþættir.
4.
Fylgja skal fyrirmælum námskrár varðandi tónstiga og hljóma
sem undirbúnir skulu fyrir hvert áfangapróf. Á prófi
velur prófdómari hvaða tónstigar og hljómar eru leiknir.
5.
Nemandi ræður röð prófverkefna.
6.
Áfangapróf skulu einungis dæmd af utanaðkomandi prófdómurum.
7.
Gæta skal þess að sami prófdómari dæmi ekki mörg ár í
röð í sama skóla.
8.
Kennari skal leggja verkefnalista prófsins fyrir prófdómara
fyrir upphaf prófs. Próf fer því aðeins fram að verkefni
uppfylli kröfur viðeigandi námskrár samkvæmt mati og staðfestingu
prófdómara.*)
Uppfylli verkefnaval prófsins ekki ákvæði viðeigandi
námskrár að mati prófdómara ber honum að skila
skriflegri athugasemd til Prófanefndar tónlistarskóla sem
getur ákveðið að ógilda próf að hluta eða öllu leyti.
*) Það sem hér er strikað yfir telst ekki vera í gildi. Texti þar á eftir er úr almennum hluta námskrár í rytmískri tónlist og er sú regla einnig talin gilda á áfangaprófum í klassískri tónlist, enda er það yngri regla um sama framkvæmdaatriði.
9.
Prófdómari er ábyrgur fyrir því að nemandi fái hæfilegt
prófverkefni í óundirbúnum nótnalestri.
10.
Kennara er heimilt að vera viðstaddur áfangapróf, enda
hafi hann ekki áhrif á niðurstöður prófdómara.
11.
Prófdómari dæmir frammistöðu nemandans á prófi án
tillits til hugsanlegra skýringa eða athugasemda.
12.
Prófdómara ber að gera nemendum grein fyrir mati sínu á
hverjum þætti prófsins með skriflegri umsögn og tölum, bæði
hvað vel var gert og hvað betur hefði mátt fara.
13.
Prófdómari skal vera viðstaddur framhaldsprófstónleika og
gefa skriflega umsögn um frammistöðu nemandans. Sé þess
nokkur kostur skal það vera sami prófdómari og dæmdi
framhaldspróf viðkomandi nemanda.
1.
Tónfræðapróf í grunn- og miðnámi eru skrifleg og
munnleg.
2.
Framhaldspróf í hljómfræði er skriflegt, framhaldspróf
í tónheyrn er skriflegt og munnlegt, framhaldspróf í
tónlistarsögu er skriflegt og prófa skal í valgrein til
framhaldsprófs en gerð prófsins veltur á eðli valgreinar.
3.
Nemendur, sem ljúka grunn- og miðprófi, skulu skila
valverkefni og er það metið sem hluti prófsins.
4.
Gefið skal fyrir valþátt grunn- og miðprófs með umsögn
og einkunn.
5.
Það ræðst eingöngu af meðaleinkunn allra prófþátta
hvort nemandi stenst próf eða ekki. Til að standast grunn-
og miðpróf í tónfræðum þarf einkunnina 6,0. Til að
standast framhaldspróf í tónfræðum þarf einkunnina 6,0
í eftirtöldum greinum, hverri fyrir sig: hljómfræði,
tónheyrn, tónlistarsögu og einni valgrein. Til að standast
framhaldspróf í tónfræðum sem aðalgrein þarf einkunnina
6,0 í hverri eftirtalinna greina: formfræði og greiningu,
tónsmíðum og tölvutækni.
6.
Grunnpróf skal fara fram að minnsta kosti einu sinni á
ári, svo fremi að nemendur í viðkomandi skóla hyggist
þreyta prófið.
7.
Grunnpróf eru samin í hverjum skóla og skulu þau vera í
samræmi við ákvæði aðalnámskrár tónlistarskóla.
8.
Grunnpróf skulu yfirfarin í viðkomandi skóla.
9.
Miðpróf skal fara fram að vori, samkvæmt nánari
ákvörðun Prófanefndar tónlistarskóla.
10.
Próftími miðprófs skal auglýstur í upphafi hvers
skólaárs.
11.
Miðpróf skal samið af Prófanefnd tónlistarskóla.
12.
Nákvæmar leiðbeiningar um framkvæmd og fyrirgjöf
munnlegra prófþátta fylgja miðprófi. Skólastjórar í
einstökum skólum bera ábyrgð á að framkvæmd og
fyrirgjöf munnlegra prófþátta sé í samræmi við
leiðbeiningar og fyrirmæli Prófanefndar.
13.
Skriflegar úrlausnir nemenda á miðprófi, ásamt einkunn
úr munnlegum prófþáttum, skal senda Prófanefnd sem annast
yfirferð og sendir niðurstöður til viðkomandi skóla.
14.
Framhaldspróf skal fara fram að minnsta kosti einu sinni á
ári, svo fremi að nemendur í viðkomandi skóla hyggist
þreyta prófið.
15.
Framhaldspróf eru samin í hverjum skóla og skulu þau vera
í samræmi við ákvæði aðalnámskrár tónlistarskóla.
16.
Framhaldspróf skulu yfirfarin í hverjum skóla.
17.
Afrit lokaverkefna nemenda á framhaldsprófi í tónfræðum
sem aðalgrein skal senda Prófanefnd tónlistarskóla sem
gefur út áfangaprófsskírteini.