K L A S S Í S K   T Ó N L I S T

Prófþættir í klassískri tónlist

Ásláttarhljóðfæri

Grunnpróf

Á grunnprófi í leik á ásláttarhljóðfæri skal nemendi leika þrjú verk og eina æfingu, þar af skal a.m.k. eitt viðfangsefni vera flutt á sneriltrommu og eitt á ásláttarhljómborð. Aðrir prófþættir eru undirstöðuæfingar, tónstigar og hljómar, val og óundirbúinn nótnalestur, auk þess sem gefið er fyrir heildarsvip prófsins.

Miða skal við að heildarpróftími á grunnprófi á ásláttarhljóðfæri fari ekki fram yfir 30 mínútur. Á prófinu skal nemandi að minnsta kosti flytja eitt verk utanbókar samkvæmt prófþætti 1 eða æfingu samkvæmt prófþætti 2.

Prófþættir eru þessir:

  • Þrjú ólík verk (15 einingar hvert) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Æfing (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Undirstöðuæfingar, tónstigar og hljómar (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
    1. Undirstöðuæfingar.
    2. Tónstigar og hljómar.
  • Val (10 einingar). Nemandi velji eitt eftirtalinna viðfangsefna:
    1. Spinni einradda út frá gefnu upphafi, hljómferli eða lagi, með eða án undirleiks.
    2. Leiki frumsamið verk eða eigin útsetningu.
    3. Hljómsetji stutta laglínu óundirbúið.
    4. Leiki stutt alþýðulag eða þjóðlag sem lært hefur verið eftir eyra.
  • Óundirbúinn nótnalestur (10 einingar).
    1. Viðfangsefni á sneriltrommu.
    2. Viðfangsefni á ásláttarhljómborð.
  • Heildarsvipur (5 einingar).

Á grunnprófi er heimilt að leika eitt verk fyrir samþætt slagverk (skv. prófþætti 1) í samræmi við kröfur þessarar námskrár. Einnig er heimilt að leika eitt verk (skv. prófþætti 1) eða æfingu (skv. prófþætti 2) á trommusett samkvæmt grunnprófskröfum námskrár í rytmískri tónlist í stað eins viðfangsefnis samkvæmt prófþætti 1. Eftir sem áður gilda framangreindar kröfur um að á grunnprófi leiki allir nemendur bæði á sneriltrommu og ásláttarhljómborð.

   Dæmi um prófverkefni á grunnprófi
Miðpróf

Á miðprófi í leik á ásláttarhljóðfæri skal nemendi leika þrjú verk og eina æfingu, þar af skal a.m.k. eitt verk eða æfing leikið á hvert hinna þriggja aðalhljóðfæra þessa námsáfanga, þ.e. sneriltrommu, ásláttarhljómborð og pákur. Aðrir prófþættir eru undirstöðuæfingar, val og óundirbúinn nótnalestur, auk þess sem gefið er fyrir heildarsvip prófsins.

Miða skal við að heildarpróftími á miðprófi á ásláttarhljóðfæri fari ekki fram yfir 45 mínútur. Á prófinu skal nemandi að minnsta kosti flytja eitt verk utanbókar samkvæmt prófþætti 1 eða æfingu samkvæmt prófþætti 2.

Prófþættir eru þessir:

  • Þrjú ólík verk (15 einingar hvert) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Æfing (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Undirstöðuæfingar, tónstigar og hljómar (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
    1. Undirstöðuæfingar.
    2. Tónstigar og hljómar.
  • Val (10 einingar). Nemandi velji eitt eftirtalinna viðfangsefna:
    1. Leiki verk að eigin vali af sambærilegri þyngd og önnur miðprófsverkefni.
    2. Spinni einradda út frá gefnu upphafi, hljómferli eða lagi, með eða án undirleiks.
    3. Leiki frumsamið verk eða eigin útsetningu.
    4. Hljómsetji stutta laglínu óundirbúið.
    5. Leiki á trommusett verk að eigin vali af sambærilegri þyngd og miðprófsverkefni í námskrá í rytmískri tónlist.
  • Óundirbúinn nótnalestur (10 einingar).
    1. Viðfangsefni á sneriltrommu.
    2. Viðfangsefni á ásláttarhljómborð.
  • Heildarsvipur (5 einingar).

Á miðprófi er heimilt að leika eitt til tvö verk fyrir samþætt slagverk (skv. prófþætti 1 og/eða 4). Eftir sem áður gilda framangreindar kröfur um að á miðprófi leiki allir nemendur á sneriltrommu, ásláttarhljómborð og pákur.

   Dæmi um prófverkefni á miðprófi
Framhaldspróf

Á framhaldsprófi í leik á ásláttarhljóðfæri skal nemandi leika þrjú verk, útdrætti úr hljómsveitarverkum og eina æfingu. Aðrir prófþættir eru undirstöðuæfingar fyrir sneriltrommu, tónstigar og hljómar, val og óundirbúinn nótnalestur, auk þess sem gefið er fyrir heildarsvip prófsins.

Miða skal við að heildarpróftími á framhaldsprófi á ásláttarhljóðfæri fari ekki fram yfir 60 mínútur. Á prófinu skal nemandi að minnsta kosti flytja eitt verk utanbókar samkvæmt prófþætti 1 eða æfingu samkvæmt prófþætti 2.

Prófþættir eru þessir:

  • Þrjú ólík verk (12 einingar hvert) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
    1. Verk fyrir ásláttarhljómborð.
    2. Verk fyrir a.m.k. þrjár pákur.
    3. Verk fyrir samþætt slagverk.
  • Æfing fyrir sneriltrommu (12 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Útdrættir úr hljómsveitarverkum (12 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Undirstöðuæfingar, tónstigar og hljómar (15 einingar).
  • Val (10 einingar). Nemandi velji eitt eftirtalinna viðfangsefna:
    1. Leiki verk að eigin vali af sambærilegri þyngd og önnur framhaldsprófsverkefni.
    2. Leiki samleiksverk þar sem hann gegnir veigamiklu hlutverki.
  • Óundirbúinn nótnalestur (10 einingar).
    1. Viðfangsefni á sneriltrommu.
    2. Viðfangsefni á ásláttarhljómborð.
  • Heildarsvipur (5 einingar).

Ekki er gert ráð fyrir að leikið sé á trommusett á framhaldsprófi.

   Dæmi um prófverkefni á framhaldsprófi
Tónleikar

Að loknu framhaldsprófi í leik á ásláttarhljóðfæri skal nemandi leika 30-60 mínútna langa efnisskrá á tónleikum innan eða utan skólans. Fyrir frammistöðu á tónleikunum er gefin umsögn en ekki einkunn. Ekki er nauðsynlegt að halda tónleikana á sama skólaári og hljóðfæraprófið fer fram. Séu prófið og tónleikarnir haldnir á sama skólaári er heimilt að nota alla efnisskrá prófsins á tónleikunum. Fari tónleikar fram síðar skal að minnsta kosti helmingur efnisskrárinnar endurnýjaður. Gæta þarf þess að efnisskrá sé fjölbreytt og vel saman sett.