K L A S S Í S K   T Ó N L I S T

Prófþættir í klassískri tónlist

Básúna

Grunnpróf

Á grunnprófi í básúnuleik skal nemendi leika þrjú verk og eina æfingu. Aðrir prófþættir eru tónstigar og brotnir hljómar, val og óundirbúinn nótnalestur, auk þess sem gefið er fyrir heildarsvip prófsins.

Miða skal við að heildarpróftími á grunnprófi í básúnuleik fari ekki fram yfir 30 mínútur. Á prófinu skal nemandi að minnsta kosti flytja eitt verk utanbókar samkvæmt prófþætti 1 eða æfingu samkvæmt prófþætti 2.

Prófþættir eru þessir:

  • Þrjú ólík verk (15 einingar hvert) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Æfing (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Tónstigar og hljómar (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Val (10 einingar). Nemandi velji eitt eftirtalinna viðfangsefna:
    1. Spinni einradda út frá gefnu upphafi, hljómferli eða lagi, með eða án undirleiks.
    2. Leiki frumsamið verk eða eigin útsetningu.
    3. Leiki stutt alþýðulag eða þjóðlag sem lært hefur verið eftir eyra.
  • Óundirbúinn nótnalestur (10 einingar).
    Sjá upplýsingar um prófkröfur í óundirbúnum nótnalestri (pdf-skjal) í básúnuleik.
  • Heildarsvipur (5 einingar).
   Dæmi um prófverkefni á grunnprófi

Í námskrá eru gefin eftirfarandi dæmi um prófverkefni á grunnprófi. Dæmunum er ætlað að skilgreina þyngdarstig prófsins. Fullt eins má velja önnur verkefni af sambærilegri þyngd.

Dæmi um tónverk

  • Clifford Barnes: The Young Artist – Úr: The Clifford Barnes Trombone Album
  • Howard Blake: Walking in the Air – Úr: Goodwin/Pearson: First Book of Trombone Solos
  • Carl Czerny: Sunrise – Úr: Hare: The Magic Trombone
  • Let Erin remember the days of old, írskt þjóðlag – Úr: Lawton: The Young Trombonist, 1. hefti
  • Camille Saint-Saëns: Royal March of the Lion – Úr: Hare: The Magic Trombone
  • Terence Greaves: Tranquil Tune – Úr: New Pieces for Trombone

Dæmi um æfingar

  • Æfing nr. 19 – Úr: Bordner: First Book of Practical Studies
  • Æfing nr. 9 – Úr: Hering: 40 Progressive Etudes
Miðpróf

Á miðprófi í básúnuleik skal nemendi leika þrjú verk og eina æfingu. Aðrir prófþættir eru tónstigar og brotnir hljómar, val og óundirbúinn nótnalestur, auk þess sem gefið er fyrir heildarsvip prófsins.

Miða skal við að heildarpróftími á miðprófi í básúnuleik fari ekki fram yfir 45 mínútur. Á prófinu skal nemandi að minnsta kosti flytja eitt verk utanbókar samkvæmt prófþætti 1 eða æfingu samkvæmt prófþætti 2.

Prófþættir eru þessir:

  • Þrjú ólík verk (15 einingar hvert) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Æfing (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Tónstigar og hljómar (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Val (10 einingar). Nemandi velji eitt eftirtalinna viðfangsefna:
    1. Leiki verk að eigin vali af sambærilegri þyngd og önnur miðprófsverkefni.
    2. Spinni einradda út frá gefnu upphafi, hljómferli eða lagi með eða án undirleiks.
    3. Leiki frumsamið verk eða eigin útsetningu.
  • Óundirbúinn nótnalestur (10 einingar).
    Sjá upplýsingar um prófkröfur í óundirbúnum nótnalestri (pdf-skjal) í básúnuleik.
  • Heildarsvipur (5 einingar).
   Dæmi um prófverkefni á miðprófi

Í námskrá eru gefin eftirfarandi dæmi um prófverkefni á miðprófi. Dæmunum er ætlað að skilgreina þyngdarstig prófsins. Fullt eins má velja önnur verkefni af sambærilegri þyngd.

Dæmi um tónverk

  • Lars Erik Larsson: Concertino, 2. kafli
  • Galliard/Keith Brown: Sónata nr. 1, 1. kafli
  • Piet Stalmeier: Andantino et Rondo
  • Benedetto Marcello/Keith Brown: Sónata í g-moll, 3. kafli Allegro
  • Pierre Max Dubois: Pour le trombone moyen, Ritournelle
  • Gordon Jacob: Sónata, 1. kafli Adagio

Dæmi um æfingar

  • Æfing nr. 34 – Úr: Hering: 40 Progressive Etudes
  • Æfing nr. 97 – Úr: Bordner: Second Book of Practical Studies
Framhaldspróf

Á framhaldsprófi í básúnuleik skal nemandi leika þrjú verk, eina æfingu og útdrætti úr hljómsveitarverkum. Aðrir prófþættir eru tónstigar og brotnir hljómar, val og óundirbúinn nótnalestur, auk þess sem gefið er fyrir heildarsvip prófsins.

Miða skal við að heildarpróftími á framhaldsprófi í básúnuleik fari ekki fram yfir 60 mínútur. Á prófinu skal nemandi að minnsta kosti flytja eitt verk utanbókar samkvæmt prófþætti 1 eða æfingu samkvæmt prófþætti 2.

Prófþættir eru þessir:

  • Þrjú ólík verk (12 einingar hvert) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Æfing (12 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Útdrættir úr hljómsveitarverkum (12 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Tónstigar og hljómar (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Val (10 einingar). Nemandi velji eitt eftirtalinna viðfangsefna:
    1. Leiki verk að eigin vali af sambærilegri þyngd og önnur framhaldsprófsverkefni.
    2. Leiki samleiksverk þar sem hann gegnir veigamiklu hlutverki.
    3. Leiki verk á annað hljóðfæri úr sömu fjölskyldu og aðalhljóðfæri.
  • Óundirbúinn nótnalestur (10 einingar).
  • Heildarsvipur (5 einingar).
   Dæmi um prófverkefni á framhaldsprófi

Í námskrá eru gefin eftirfarandi dæmi um prófverkefni á framhaldsprófi. Dæmunum er ætlað að skilgreina þyngdarstig prófsins. Fullt eins má velja önnur verkefni af sambærilegri þyngd.

Dæmi um tónverk

  • J. S. Bach: Sellósvíta nr. 1, Menúett 1 og 2 og Gigue (5., 6. og 7. kafli) [einleiksverk]
  • Camille Saint-Saëns: Cavatine op. 144
  • Ferdinand David: Concertino í Es-dúr op. 4
  • Alexander Guilmant: Morceau Symphonique op. 88
  • Paul Hindemith: Sónata
  • Kazimerz Serocki: Sónatína

Dæmi um æfingar

  • Æfing nr. 86 – Úr: Blazhevich: Studies in Clefs
  • Æfing nr. 37 – Úr: Kopprasch: Sixty Selected Studies for Trombone, 2. hefti

Dæmi um útdrætti úr hljómsveitarverkum

  • W. A. Mozart: Tuba Mirum úr Sálumessu, 2. básúna
  • H. Berlioz: Ungverskur mars úr Faust
  • N. R. Korsakoff: Russian Easter Festival Overture, 2. básúna
  • N. R. Korsakoff: Sheherazade op. 35, 2. básúna
  • G. Mahler: Sinfónía nr. 3, úr 1. kafla
  • Z. Kodály: Hary Janos svíta

Ofangreind dæmi eru úr: Brown, Keith: Orchestral Excerpts from the Symphonic Repertoire for Trombone and Tuba

Dæmi um tónverk fyrir bassabásúnu

  • J. S. Bach / Bardez: Sellósvíta nr.1, Menuett 1 og 2 og Gigue (5., 6. og 7. kafli) [einleiksverk]
  • Harold East: Sonatina for Bass trombone
  • I. Lebedev: Concerto in one movement
  • Ernst Sache: Concertino for Bass Trombone
  • Alec Wilder: Sónata fyrir bassabásúnu, 3. og 5. kafli
  • Pierre Petit: Fantaisie

Dæmi um æfingar fyrir bassabásúnu

  • Æfing nr. 56, Dramatic – Úr: Pederson: Elementary Etudes for Bass Trombone
  • Æfing nr. 19 – Úr: Ostrander: Melodious Etudes for Bass Trombone

Dæmi fyrir bassabásúnu um útdrætti úr hljómsveitarverkum

  • J. Haydn: Sköpunin
  • H. Berlioz: Ungverskur mars úr Faust
  • R. Schumann: Sinfónía nr. 3, 4. kafli Choral
  • D. Shostakovich: Sinfónía nr. 5
  • R. Wagner: Tannhauser, forleikur
  • R. Wagner: Lohengrin, inngangur 3. þáttar

Ofangreind dæmi eru úr: Brown, Keith: Orchestral Excerpts from the Symphonic Repertoire for Trombone and Tuba

Tónleikar

Að loknu framhaldsprófi í básúnuleik skal nemandi leika 30-60 mínútna langa efnisskrá á tónleikum innan eða utan skólans. Fyrir frammistöðu á tónleikunum er gefin umsögn en ekki einkunn. Ekki er nauðsynlegt að halda tónleikana á sama skólaári og hljóðfæraprófið fer fram. Séu prófið og tónleikarnir haldnir á sama skólaári er heimilt að nota alla efnisskrá prófsins á tónleikunum. Fari tónleikar fram síðar skal að minnsta kosti helmingur efnisskrárinnar endurnýjaður. Gæta þarf þess að efnisskrá sé fjölbreytt og vel saman sett.