K L A S S Í S K   T Ó N L I S T

Prófþættir í klassískri tónlist

Fiðla

Grunnpróf

Á grunnprófi í fiðluleik skal nemendi leika þrjú verk og eina æfingu. Aðrir prófþættir eru tónstigar og brotnir hljómar, val og óundirbúinn nótnalestur, auk þess sem gefið er fyrir heildarsvip prófsins.

Miða skal við að heildarpróftími á grunnprófi í fiðluleik fari ekki fram yfir 30 mínútur. Á prófinu skal nemandi að minnsta kosti flytja eitt verk utanbókar samkvæmt prófþætti 1 eða æfingu samkvæmt prófþætti 2.

Prófþættir eru þessir:

  • Þrjú ólík verk (15 einingar hvert) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Æfing (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Tónstigar og hljómar (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Val (10 einingar). Nemandi velji eitt eftirtalinna viðfangsefna:
    1. Spinni einradda út frá gefnu upphafi, hljómferli eða lagi, með eða án undirleiks.
    2. Leiki frumsamið verk eða eigin útsetningu.
    3. Leiki stutt alþýðulag eða þjóðlag sem lært hefur verið eftir eyra.
  • Óundirbúinn nótnalestur (10 einingar).
    Sjá upplýsingar um prófkröfur í óundirbúnum nótnalestri (pdf-skjal) í fiðluleik.
  • Heildarsvipur (5 einingar).
   Dæmi um prófverkefni á grunnprófi

Í námskrá eru gefin eftirfarandi dæmi um prófverkefni á grunnprófi. Dæmunum er ætlað að skilgreina þyngdarstig prófsins. Fullt eins má velja önnur verkefni af sambærilegri þyngd.

Dæmi um tónverk

  • Ferdinand Küchler: Concertino op. 15 í D-dúr, 1. kafli
  • Hafliði Hallgrímsson: Rura, Rura – Úr: 6 Nordic Impressions
  • Johannes Brahms: Ungverskur dans – Úr: Avsharian: Fun with Solos
  • Friedrich Seitz: Concertino op. 13 í G-dúr
  • Oscar Rieding: Air Varié op. 23, nr. 3
  • Béla Bartók: Smálag – Úr: Zehn Slowakische Volkslieder

Dæmi um æfingar

  • Æfing nr. 14 – Úr: Applebaum: Orchestral Bowing Etudes
  • Æfing nr. 28 – Úr: Küchler: 100 Etudes for the Violin
Miðpróf

Á miðprófi í fiðluleik skal nemendi leika þrjú verk og eina æfingu. Aðrir prófþættir eru tónstigar og brotnir hljómar, val og óundirbúinn nótnalestur, auk þess sem gefið er fyrir heildarsvip prófsins.

Miða skal við að heildarpróftími á miðprófi í fiðluleik fari ekki fram yfir 45 mínútur. Á prófinu skal nemandi að minnsta kosti flytja eitt verk utanbókar samkvæmt prófþætti 1 eða æfingu samkvæmt prófþætti 2.

Prófþættir eru þessir:

  • Þrjú ólík verk (15 einingar hvert) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Æfing (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Tónstigar og hljómar (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Val (10 einingar). Nemandi velji eitt eftirtalinna viðfangsefna:
    1. Leiki verk að eigin vali af sambærilegri þyngd og önnur miðprófsverkefni.
    2. Spinni einradda út frá gefnu upphafi, hljómferli eða lagi með eða án undirleiks.
    3. Leiki frumsamið verk eða eigin útsetningu.
  • Óundirbúinn nótnalestur (10 einingar).
    Sjá upplýsingar um prófkröfur í óundirbúnum nótnalestri (pdf-skjal) í fiðluleik.
  • Heildarsvipur (5 einingar).
   Dæmi um prófverkefni á miðprófi

Í námskrá eru gefin eftirfarandi dæmi um prófverkefni á miðprófi. Dæmunum er ætlað að skilgreina þyngdarstig prófsins. Fullt eins má velja önnur verkefni af sambærilegri þyngd.

Dæmi um tónverk

  • J. S. Bach: Fiðlukonsert í a-moll, 1. kafli
  • V. Monti: Czardas
  • Þórarinn Jónsson: Meditation – Úr: Tvö lög
  • F. Seitz: Fiðlukonsert í g-moll op. 12, 1. kafli
  • Georg Friedrich Händel: Sónata í F-dúr, 1. og 2. kafli
  • W. A. Mozart: Rondo í D-dúr – Úr: Gingold, J.: Solos for the Violin Player

Dæmi um æfingar

  • Æfing nr. 18 – Úr: Mazas.: Etýður op. 36
  • Æfing nr. 20 – Úr: Dont: 24 Studies op. 37
Framhaldspróf

Á framhaldsprófi í fiðluleik skal nemandi leika þrjú verk, eina æfingu og útdrætti úr hljómsveitarverkum. Aðrir prófþættir eru tónstigar og brotnir hljómar, val og óundirbúinn nótnalestur, auk þess sem gefið er fyrir heildarsvip prófsins.

Miða skal við að heildarpróftími á framhaldsprófi í fiðluleik fari ekki fram yfir 60 mínútur. Á prófinu skal nemandi að minnsta kosti flytja eitt verk utanbókar samkvæmt prófþætti 1 eða æfingu samkvæmt prófþætti 2.

Prófþættir eru þessir:

  • Þrjú ólík verk (12 einingar hvert) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Æfing (12 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Útdrættir úr hljómsveitarverkum (12 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Tónstigar og hljómar (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Val (10 einingar). Nemandi velji eitt eftirtalinna viðfangsefna:
    1. Leiki verk að eigin vali af sambærilegri þyngd og önnur framhaldsprófsverkefni.
    2. Leiki samleiksverk þar sem hann gegnir veigamiklu hlutverki.
  • Óundirbúinn nótnalestur (10 einingar).
  • Heildarsvipur (5 einingar).
   Dæmi um prófverkefni á framhaldsprófi

Í námskrá eru gefin eftirfarandi dæmi um prófverkefni á framhaldsprófi. Dæmunum er ætlað að skilgreina þyngdarstig prófsins. Fullt eins má velja önnur verkefni af sambærilegri þyngd.

Dæmi um tónverk

  • Max Bruch: Fiðlukonsert nr. 1 í g-moll, op. 26, 1. þáttur
  • Wolfgang Amadeus Mozart: Konsert í D-dúr KV 218, 1. þáttur með kadensu
  • Johann Sebastian Bach: Partíta nr. 3 í E-dúr, 1. þáttur
  • Jean Marie Leclair: Sónata í D-dúr, 1. og 4. þáttur
  • Jón Nordal: Sónata, 2. og 3. þáttur
  • Áskell Másson: Teikn fyrir einleiksfiðlu

Dæmi um útdrætti úr hljómsveitarverkum

  • Wolfgang Amadeus Mozart: Sinfónía nr. 40 í g-moll, úr 1. og 3. þætti – Úr: Gingold: Orchestral Excerpts, 1. hefti
  • Ludwig van Beethoven: Sinfónía nr. 5, úr 1. og 3. þætti – Úr: Gingold: Orchestral Excerpts, 2. hefti
  • P. I. Tchaikovsky: Sinfónía nr. 4 op. 36, úr 2. þætti – Úr: Gingold: Orchestral Excerpts, 1. hefti
  • Antonín Dvořák: Sinfónía nr. 5, Frá nýja heiminum, úr 2. þætti – Úr: Gingold: Orchestral Excerpts, 2. hefti
  • Igor Stravinsky: Danse sacrale úr Le sacre du printemps, taktar 142–154 – Úr: Moderne Orchester-Studien, 1. hefti
  • Béla Bartók: Konsert fyrir hljómsveit, 1. þáttur, taktar 76–231 – Úr: Moderne Orchester-Studien, 2. hefti

Dæmi um æfingar

  • Caprice nr. 14 – Úr: Paganini: 24 Caprices
  • Caprice nr. 28 – Úr: Fiorillo: 36 Caprices
Tónleikar

Að loknu framhaldsprófi í fiðluleik skal nemandi leika 30-60 mínútna langa efnisskrá á tónleikum innan eða utan skólans. Fyrir frammistöðu á tónleikunum er gefin umsögn en ekki einkunn. Ekki er nauðsynlegt að halda tónleikana á sama skólaári og hljóðfæraprófið fer fram. Séu prófið og tónleikarnir haldnir á sama skólaári er heimilt að nota alla efnisskrá prófsins á tónleikunum. Fari tónleikar fram síðar skal að minnsta kosti helmingur efnisskrárinnar endurnýjaður. Gæta þarf þess að efnisskrá sé fjölbreytt og vel saman sett.