K L A S S Í S K   T Ó N L I S T

Prófþættir í klassískri tónlist

Harmonika

Grunnpróf

Á grunnprófi í harmonikuleik skal nemendi leika þrjú verk og eina æfingu. Aðrir prófþættir eru tónstigar og hljómar, val og óundirbúinn nótnalestur, auk þess sem gefið er fyrir heildarsvip prófsins.

Miða skal við að heildarpróftími á grunnprófi í harmonikuleik fari ekki fram yfir 30 mínútur. Á prófinu skal nemandi að minnsta kosti flytja eitt verk utanbókar samkvæmt prófþætti 1 eða æfingu samkvæmt prófþætti 2.

Prófþættir eru þessir:

  • Þrjú ólík verk (15 einingar hvert) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Æfing (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Tónstigar og hljómar (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Val (10 einingar). Nemandi velji eitt eftirtalinna viðfangsefna:
    1. Spinni einradda út frá gefnu upphafi, hljómferli eða lagi, með eða án undirleiks.
    2. Leiki frumsamið verk eða eigin útsetningu.
    3. Leiki stutt alþýðulag eða þjóðlag sem lært hefur verið eftir eyra.
  • Óundirbúinn nótnalestur (10 einingar).
  • Heildarsvipur (5 einingar).
   Dæmi um prófverkefni á grunnprófi

Í námskrá eru gefin eftirfarandi dæmi um prófverkefni á grunnprófi. Dæmunum er ætlað að skilgreina þyngdarstig prófsins. Fullt eins má velja önnur verkefni af sambærilegri þyngd.

Dæmi um tónverk – harmonika með tónbassa

  • Menúett í g-moll BWV Anhang 115 – Úr: Notenbüchlein für Anna Magdalena, eignað Christian Pezold
  • A la claire Fontaine – Úr: Surdin (útg.): Canadian Folk Songs, Grade II
  • Torbjörn Lundquist: Allerlei nr. 3
  • Béla Bartók: Pastorale – Úr: Mikrokosmos, 1. hefti
  • Anders Grøthe: Nr. 7 – Úr: 20 norske folkemelodier
  • Lars Holm: Allegro Úr: Music-box 1

Dæmi um æfingar – harmonika með tónbassa

  • Æfing nr. 2 – Úr: Czerny/Abbott: Exercices gradues pour l’accordion, 2. hefti
  • Æfing nr. 5 – Úr: Harris, Eddie: Sol-Fah patterns 1

Dæmi um tónverk – harmonika með hljómbassa

  • Menúett í g-moll BWV Anhang 115 – Úr: Notenbüchlein für Anna Magdalena, eignað Christian Pezold
  • Santa Lucia – Úr: Palmer/Hughes: Accordion Course 3
  • Lag í C-dúr, nr. 24 – Úr: Eisenmann: Steps 1b
  • Prelude – Úr: Holm: Spela mera dragspel
  • Menúett, nr. 76 – Úr: Eisenmann: Schulwerk, 2. hefti
  • Comedians dance – Úr: Palmer/Huges: Accordion Course 4

Dæmi um æfingar – harmonika með hljómbassa

  • Æfing nr. 3 – Úr: Abbottt: 26 Easy and Progressive Studies
  • Æfing nr. 6 – Úr: Czerny, C./Ahvenainen: 24 Etudes
Miðpróf

Á miðprófi í harmonikuleik skal nemendi leika þrjú verk og eina æfingu. Aðrir prófþættir eru tónstigar og hljómar, val og óundirbúinn nótnalestur, auk þess sem gefið er fyrir heildarsvip prófsins.

Miða skal við að heildarpróftími á miðprófi í harmonikuleik fari ekki fram yfir 45 mínútur. Á prófinu skal nemandi að minnsta kosti flytja eitt verk utanbókar samkvæmt prófþætti 1 eða æfingu samkvæmt prófþætti 2.

Prófverkefni á miðprófi skulu leikin á harmoniku með tónbassa að öðru leyti en því að heimilt er að leika eitt tónverk sem skrifað er fyrir harmoniku með hljómbassa.

Prófþættir eru þessir:

  • Þrjú ólík verk (15 einingar hvert) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Æfing (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Tónstigar og hljómar (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Val (10 einingar). Nemandi velji eitt eftirtalinna viðfangsefna:
    1. Leiki verk að eigin vali af sambærilegri þyngd og önnur miðprófsverkefni.
    2. Spinni einradda út frá gefnu upphafi, hljómferli eða lagi með eða án undirleiks.
    3. Leiki frumsamið verk eða eigin útsetningu.
  • Óundirbúinn nótnalestur (10 einingar).
  • Heildarsvipur (5 einingar).
   Dæmi um prófverkefni á miðprófi

Í námskrá eru gefin eftirfarandi dæmi um prófverkefni á miðprófi. Dæmunum er ætlað að skilgreina þyngdarstig prófsins. Fullt eins má velja önnur verkefni af sambærilegri þyngd.

Dæmi um tónverk

  • Domenico Scarlatti: Sónata í e-moll K. 98, L. 325
  • Wolfgang Jacobi: Nr. 8 – Úr: 10 Polyphone Stücke nach spanischen Volksliedern
  • Wladislaw Solotarjow: Kindersuite 1
  • Louis-Claude Daquin: Le coucou
  • Petr Fiala: Song – Úr: For Children
  • Heikki Valpola: Clowns

Dæmi um æfingar

  • Æfing nr. 4 – Úr: Czerny/Abbott: Exercices gradues pour l’accordion, 2. hefti
  • Etude IV – Úr: Bertini, Henri: 25 Easy Studies op. 100
Framhaldspróf

Á framhaldsprófi í harmonikuleik skal nemandi leika þrjú verk og eina æfingu. Aðrir prófþættir eru tónstigar og hljómar, val og óundirbúinn nótnalestur, auk þess sem gefið er fyrir heildarsvip prófsins.

Miða skal við að heildarpróftími á framhaldsprófi í harmonikuleik fari ekki fram yfir 60 mínútur. Á prófinu skal nemandi að minnsta kosti flytja eitt verk utanbókar samkvæmt prófþætti 1 eða æfingu samkvæmt prófþætti 2.

Prófþættir eru þessir:

  • Þrjú ólík verk (15 einingar hvert) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Æfing (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Tónstigar og hljómar (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Val (10 einingar). Nemandi velji eitt eftirtalinna viðfangsefna:
    1. Leiki verk að eigin vali af sambærilegri þyngd og önnur framhaldsprófsverkefni.
    2. Leiki samleiksverk þar sem hann gegnir veigamiklu hlutverki.
    3. Leiki tónverk sem skrifað er fyrir harmoniku með tónbassa.
  • Óundirbúinn nótnalestur (10 einingar).
  • Heildarsvipur (5 einingar)
   Dæmi um prófverkefni á framhaldsprófi

Í námskrá eru gefin eftirfarandi dæmi um prófverkefni á framhaldsprófi. Dæmunum er ætlað að skilgreina þyngdarstig prófsins. Fullt eins má velja önnur verkefni af sambærilegri þyngd.

Dæmi um tónverk

  • Johann Sebastian Bach: Inventio 4 – Úr: Inventionen und Sinfonien [Urtext]
  • Wladislaw Solotarjow: Sónata nr. 2
  • Vaclav Trojan: Die zertrümmerte Kathedrale
  • Domenico Scarlatti: Sónata í C-dúr K. 159, L. 104 [Urtext]
  • Wolfgang Jacobi: Interméde
  • Niels Viggo Bentzon: In the Zoo

Dæmi um æfingar

  • John Gould: Shake
  • Æfing nr. 2 – Úr: Czerny/Abbott: Exercices gradues pour l’accordion, 4. hefti
Tónleikar

Að loknu framhaldsprófi í harmonikuleik skal nemandi leika 30-60 mínútna langa efnisskrá á tónleikum innan eða utan skólans. Fyrir frammistöðu á tónleikunum er gefin umsögn en ekki einkunn. Ekki er nauðsynlegt að halda tónleikana á sama skólaári og hljóðfæraprófið fer fram. Séu prófið og tónleikarnir haldnir á sama skólaári er heimilt að nota alla efnisskrá prófsins á tónleikunum. Fari tónleikar fram síðar skal að minnsta kosti helmingur efnisskrárinnar endurnýjaður. Gæta þarf þess að efnisskrá sé fjölbreytt og vel saman sett.