K L A S S Í S K   T Ó N L I S T

Prófþættir í klassískri tónlist

Horn

Grunnpróf

Á grunnprófi í hornleik skal nemendi leika þrjú verk og eina æfingu. Aðrir prófþættir eru tónstigar og brotnir hljómar, val og óundirbúinn nótnalestur, auk þess sem gefið er fyrir heildarsvip prófsins.

Miða skal við að heildarpróftími á grunnprófi í hornleik fari ekki fram yfir 30 mínútur. Á prófinu skal nemandi að minnsta kosti flytja eitt verk utanbókar samkvæmt prófþætti 1 eða æfingu samkvæmt prófþætti 2.

Prófþættir eru þessir:

  • Þrjú ólík verk (15 einingar hvert) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Æfing (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Tónstigar og hljómar (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Val (10 einingar). Nemandi velji eitt eftirtalinna viðfangsefna:
    1. Spinni einradda út frá gefnu upphafi, hljómferli eða lagi, með eða án undirleiks.
    2. Leiki frumsamið verk eða eigin útsetningu.
    3. Leiki stutt alþýðulag eða þjóðlag sem lært hefur verið eftir eyra.
  • Óundirbúinn nótnalestur (10 einingar).
    Sjá upplýsingar um prófkröfur í óundirbúnum nótnalestri (pdf-skjal) í hornleik.
  • Heildarsvipur (5 einingar).
   Dæmi um prófverkefni á grunnprófi

Í námskrá eru gefin eftirfarandi dæmi um prófverkefni á grunnprófi. Dæmunum er ætlað að skilgreina þyngdarstig prófsins. Fullt eins má velja önnur verkefni af sambærilegri þyngd.

Dæmi um tónverk

  • Eileen Clews: Off Beat Waltz, Circus Polka – Úr: 9 Pieces for Horn
  • W. A. Mozart: Lied-Song – Úr: Onozo/Kovacs: Horn Music for Beginners
  • M. Rose: Scherzo – Úr: Three Simple Pieces for Horn
  • F. Schubert: Serenade – Úr: French Horn Solos
  • Taylor / Dallas: Film '87 – Úr: Ramskill: Jazzed Up Too
  • S. Yradier: La Paloma – Úr: French Horn Solos

Dæmi um æfingar

  • Maxime-Alphonse: Æfing nr. 1 – Úr: 200 Études nouvelles, 1. hefti
  • Endresen: Æfing nr. 6 – Úr: Supplementary Studies
Miðpróf

Á miðprófi í hornleik skal nemendi leika þrjú verk og eina æfingu. Aðrir prófþættir eru tónstigar og brotnir hljómar, val og óundirbúinn nótnalestur, auk þess sem gefið er fyrir heildarsvip prófsins.

Miða skal við að heildarpróftími á miðprófi í hornleik fari ekki fram yfir 45 mínútur. Á prófinu skal nemandi að minnsta kosti flytja eitt verk utanbókar samkvæmt prófþætti 1 eða æfingu samkvæmt prófþætti 2.

Prófþættir eru þessir:

  • Þrjú ólík verk (15 einingar hvert) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Æfing (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Tónstigar og hljómar (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Val (10 einingar). Nemandi velji eitt eftirtalinna viðfangsefna:
    1. Leiki verk að eigin vali af sambærilegri þyngd og önnur miðprófsverkefni.
    2. Spinni einradda út frá gefnu upphafi, hljómferli eða lagi með eða án undirleiks.
    3. Leiki frumsamið verk eða eigin útsetningu.
  • Óundirbúinn nótnalestur og tónflutningur (10 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
    Sjá upplýsingar um prófkröfur í óundirbúnum nótnalestri (pdf-skjal) í hornleik.
  • Heildarsvipur (5 einingar).
   Dæmi um prófverkefni á miðprófi

Í námskrá eru gefin eftirfarandi dæmi um prófverkefni á miðprófi. Dæmunum er ætlað að skilgreina þyngdarstig prófsins. Fullt eins má velja önnur verkefni af sambærilegri þyngd.

Dæmi um tónverk

  • E. Bozza: En Irland
  • L. Cherubini: Sónata nr. 1
  • A. Corelli: Sónata í F-dúr, 1. kafli
  • Franz Joseph Haydn: Konsert nr. 2 í D-dúr, 1. eða 3. kafli
  • W. A. Mozart: Konsert nr. 3, 2. kafli
  • C. Saint-Saëns: Rómansa, op. 36

Dæmi um æfingar

  • C. Kopprasch: Æfing nr. 8 – Úr: 60 æfingar, 1. hefti
  • Maxime-Alphonse: Æfing nr. 36 – Úr: 200 Études nouvelles, 1. hefti
Framhaldspróf

Á framhaldsprófi í hornleik skal nemandi leika þrjú verk, eina æfingu og útdrætti úr hljómsveitarverkum. Aðrir prófþættir eru tónstigar og brotnir hljómar, val og óundirbúinn nótnalestur, auk þess sem gefið er fyrir heildarsvip prófsins.

Miða skal við að heildarpróftími á framhaldsprófi í hornleik fari ekki fram yfir 60 mínútur. Á prófinu skal nemandi að minnsta kosti flytja eitt verk utanbókar samkvæmt prófþætti 1 eða æfingu samkvæmt prófþætti 2.

Prófþættir eru þessir:

  • Þrjú ólík verk (12 einingar hvert) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Æfing (12 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Útdrættir úr hljómsveitarverkum (12 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Tónstigar og hljómar (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Val (10 einingar). Nemandi velji eitt eftirtalinna viðfangsefna:
    1. Leiki verk að eigin vali af sambærilegri þyngd og önnur framhaldsprófsverkefni.
    2. Leiki samleiksverk þar sem hann gegnir veigamiklu hlutverki.
  • Óundirbúinn nótnalestur og tónflutningur (10 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Heildarsvipur (5 einingar)
   Dæmi um prófverkefni á framhaldsprófi

Í námskrá eru gefin eftirfarandi dæmi um prófverkefni á framhaldsprófi. Dæmunum er ætlað að skilgreina þyngdarstig prófsins. Fullt eins má velja önnur verkefni af sambærilegri þyngd.

Dæmi um tónverk

  • Ludwig van Beethoven: Sónata, op. 17, 1. kafli
  • Eugène Bozza: En forêt
  • Lars-Erik Larsson: Concertino, 1. eða 3. kafli
  • W. A. Mozart: Konsert nr. 2, 1. kafli
  • Gioacchino Rossini: Preludium, tema e variazioni
  • Richard Strauss: Andante, op. posth.

Dæmi um útdrætti úr hljómsveitarverkum

  • L. v. Beethoven: Sinfónía nr. 9, 4. kafli (4. horn)
  • J. Brahms: Sinfónía nr. 2, 1. kafli
  • A. Bruckner: Sinfónía nr. 4, 1. kafli
  • M. Ravel: Pavane pour une infante défunte
  • R. Stauss: Till Eulenspiegel
  • P. Tchaikovsky: Sinfónía nr. 5, 2. kafli

Dæmi um æfingar

  • Maxime-Alphonse: Æfing nr. 7 – Úr: 200 Études nouvelles, 4. hefti
  • Verne Reynolds: Æfing nr. 1 – Úr: Studies
Tónleikar

Að loknu framhaldsprófi í hornleik skal nemandi leika 30-60 mínútna langa efnisskrá á tónleikum innan eða utan skólans. Fyrir frammistöðu á tónleikunum er gefin umsögn en ekki einkunn. Ekki er nauðsynlegt að halda tónleikana á sama skólaári og hljóðfæraprófið fer fram. Séu prófið og tónleikarnir haldnir á sama skólaári er heimilt að nota alla efnisskrá prófsins á tónleikunum. Fari tónleikar fram síðar skal að minnsta kosti helmingur efnisskrárinnar endurnýjaður. Gæta þarf þess að efnisskrá sé fjölbreytt og vel saman sett.