K L A S S Í S K   T Ó N L I S T

Prófþættir í klassískri tónlist

Óbó

Grunnpróf

Á grunnprófi í óbóleik skal nemendi leika þrjú verk og eina æfingu. Aðrir prófþættir eru tónstigar og brotnir hljómar, val og óundirbúinn nótnalestur, auk þess sem gefið er fyrir heildarsvip prófsins.

Miða skal við að heildarpróftími á grunnprófi í óbóleik fari ekki fram yfir 30 mínútur. Á prófinu skal nemandi að minnsta kosti flytja eitt verk utanbókar samkvæmt prófþætti 1 eða æfingu samkvæmt prófþætti 2.

Prófþættir eru þessir:

  • Þrjú ólík verk (15 einingar hvert) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Æfing (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Tónstigar og hljómar (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Val (10 einingar). Nemandi velji eitt eftirtalinna viðfangsefna:
    1. Spinni einradda út frá gefnu upphafi, hljómferli eða lagi, með eða án undirleiks.
    2. Leiki frumsamið verk eða eigin útsetningu.
    3. Leiki stutt alþýðulag eða þjóðlag sem lært hefur verið eftir eyra.
  • Óundirbúinn nótnalestur (10 einingar).
    Sjá upplýsingar um prófkröfur í óundirbúnum nótnalestri (pdf-skjal) í óbóleik.
  • Heildarsvipur (5 einingar).
   Dæmi um prófverkefni á grunnprófi

Í námskrá eru gefin eftirfarandi dæmi um prófverkefni á grunnprófi. Dæmunum er ætlað að skilgreina þyngdarstig prófsins. Fullt eins má velja önnur verkefni af sambærilegri þyngd.

Dæmi um tónverk

  • G. F. Handel: Air og Rondo
  • J. Craxton: Nr. 12 – Úr: Second Book of Oboe Solos
  • C. Franck: Pièce V
  • Marcello: Largo og Allegretto
  • Corelli / Barbirolli: Konsert í F-dúr
  • Lag nr. 5 – Úr: Sounds Good for Oboe

Dæmi um æfingar

  • Æfing nr. 17 – Úr: Hinke: Elementary Method
  • Æfing nr. 28 – Úr: Joppig og McColl: 100 Easy Classical Studies
Miðpróf

Á miðprófi í óbóleik skal nemendi leika þrjú verk og eina æfingu. Aðrir prófþættir eru tónstigar og brotnir hljómar, val og óundirbúinn nótnalestur, auk þess sem gefið er fyrir heildarsvip prófsins.

Miða skal við að heildarpróftími á miðprófi í óbóleik fari ekki fram yfir 45 mínútur. Á prófinu skal nemandi að minnsta kosti flytja eitt verk utanbókar samkvæmt prófþætti 1 eða æfingu samkvæmt prófþætti 2.

Prófþættir eru þessir:

  • Þrjú ólík verk (15 einingar hvert) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Æfing (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Tónstigar og hljómar (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Val (10 einingar). Nemandi velji eitt eftirtalinna viðfangsefna:
    1. Leiki verk að eigin vali af sambærilegri þyngd og önnur miðprófsverkefni.
    2. Spinni einradda út frá gefnu upphafi, hljómferli eða lagi með eða án undirleiks.
    3. Leiki frumsamið verk eða eigin útsetningu.
  • Óundirbúinn nótnalestur (10 einingar).
    Sjá upplýsingar um prófkröfur í óundirbúnum nótnalestri (pdf-skjal) í óbóleik.
  • Heildarsvipur (5 einingar).
   Dæmi um prófverkefni á miðprófi

Í námskrá eru gefin eftirfarandi dæmi um prófverkefni á miðprófi. Dæmunum er ætlað að skilgreina þyngdarstig prófsins. Fullt eins má velja önnur verkefni af sambærilegri þyngd.

Dæmi um tónverk

  • Atli Heimir Sveinsson: Intermezzo úr Dimmalimm
  • Carl Nielsen: Fantasiestücke op. 2
  • A. Richardson: Roundelay
  • E. Rothwell (úts.): Three French Pieces
  • R. Schumann: Rómansa nr. 1
  • G. Ph. Telemann: Sónata í a-moll, 1. og 2. kafli

Dæmi um æfingar

  • Æfing nr. 50 – Úr: Joppig og McColl: 100 Easy Classical Studies
  • Æfing nr. 9 – Úr: Brod: Études et sonates
Framhaldspróf

Á framhaldsprófi í óbóleik skal nemandi leika þrjú verk, eina æfingu og útdrætti úr hljómsveitarverkum. Aðrir prófþættir eru tónstigar og brotnir hljómar, val og óundirbúinn nótnalestur, auk þess sem gefið er fyrir heildarsvip prófsins.

Miða skal við að heildarpróftími á framhaldsprófi í óbóleik fari ekki fram yfir 60 mínútur. Á prófinu skal nemandi að minnsta kosti flytja eitt verk utanbókar samkvæmt prófþætti 1 eða æfingu samkvæmt prófþætti 2.

Prófþættir eru þessir:

  • Þrjú ólík verk (12 einingar hvert) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Æfing (12 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Útdrættir úr hljómsveitarverkum (12 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Tónstigar og hljómar (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Val (10 einingar). Nemandi velji eitt eftirtalinna viðfangsefna:
    1. Leiki verk að eigin vali af sambærilegri þyngd og önnur framhaldsprófsverkefni.
    2. Leiki samleiksverk þar sem hann gegnir veigamiklu hlutverki.
    3. Leiki tónverk á annað hljóðfæri úr sömu fjölskyldu og aðalhljóðfæri.
  • Óundirbúinn nótnalestur (10 einingar).
  • Heildarsvipur (5 einingar).
   Dæmi um prófverkefni á framhaldsprófi

Í námskrá eru gefin eftirfarandi dæmi um prófverkefni á framhaldsprófi. Dæmunum er ætlað að skilgreina þyngdarstig prófsins. Fullt eins má velja önnur verkefni af sambærilegri þyngd.

Dæmi um tónverk

  • G. F. Händel: Sónata í B-dúr
  • B. Britten: Þrír kaflar úr Six Metamorphoses after Ovid op. 49
  • V. Bellini: Konsert í Es-dúr
  • G. Grovlez: Sarabande et Allegro
  • M. Seiber: Improvisation
  • Herbert H. Ágústsson: Sónata

Dæmi um æfingar

  • Æfing nr. 6 – Úr: Bozza: Dix-huit études pour hautbois
  • Æfing nr. 35 – Úr: Ferling: 48 Studies for Oboe, op. 31

Dæmi um útdrætti úr hljómsveitarverkum

  • L. van Beethoven: Sinfóníur nr. 3 og 7
  • J. Brahms: Sinfónía nr. 1 og Fiðlukonsert
  • B. Bartók: Konsert fyrir hljómsveit
  • I. Stravinsky: Pulcinella svíta

Ofangreind dæmi eru úr: Rothwell: Difficult Passages 1–3

Tónleikar

Að loknu framhaldsprófi í óbóleik skal nemandi leika 30-60 mínútna langa efnisskrá á tónleikum innan eða utan skólans. Fyrir frammistöðu á tónleikunum er gefin umsögn en ekki einkunn. Ekki er nauðsynlegt að halda tónleikana á sama skólaári og hljóðfæraprófið fer fram. Séu prófið og tónleikarnir haldnir á sama skólaári er heimilt að nota alla efnisskrá prófsins á tónleikunum. Fari tónleikar fram síðar skal að minnsta kosti helmingur efnisskrárinnar endurnýjaður. Gæta þarf þess að efnisskrá sé fjölbreytt og vel saman sett.