K L A S S Í S K   T Ó N L I S T

Prófþættir í klassískri tónlist

Píanó

Grunnpróf

Á grunnprófi í píanóleik skal nemendi leika þrjú verk og eina æfingu. Aðrir prófþættir eru tónstigar og hljómar, val og óundirbúinn nótnalestur, auk þess sem gefið er fyrir heildarsvip prófsins.

Miða skal við að heildarpróftími á grunnprófi í píanóleik fari ekki fram yfir 30 mínútur. Á prófinu skal nemandi að minnsta kosti flytja eitt verk utanbókar samkvæmt prófþætti 1 eða æfingu samkvæmt prófþætti 2.

Prófþættir eru þessir:

  • Þrjú ólík verk (15 einingar hvert) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Æfing (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Tónstigar og hljómar (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Val (10 einingar). Nemandi velji eitt eftirtalinna viðfangsefna:
    1. Spinni einradda út frá gefnu upphafi, hljómferli eða lagi, með eða án undirleiks.
    2. Leiki frumsamið verk eða eigin útsetningu.
    3. Hljómsetji stutta laglínu óundirbúið.
    4. Leiki stutt alþýðulag eða þjóðlag sem lært hefur verið eftir eyra.
  • Óundirbúinn nótnalestur (10 einingar).
    Sjá upplýsingar um prófkröfur í óundirbúnum nótnalestri (pdf-skjal) í píanóleik.
  • Heildarsvipur (5 einingar).
   Dæmi um prófverkefni á grunnprófi

Í námskrá eru gefin eftirfarandi dæmi um prófverkefni á grunnprófi. Dæmunum er ætlað að skilgreina þyngdarstig prófsins. Fullt eins má velja önnur verkefni af sambærilegri þyngd.

Dæmi um tónverk

  • Menúett í g-moll BWV Anhang 115 – Úr: Nótnabók Önnu Magdalenu Bach, eignað Christian Pezold
  • Ludwig van Beethoven: Ecossaise í G-dúr – Úr: Waterman/Harewood: The Young Pianist’s Repertoire, 1. hefti, eða: Palmer: Essential Keyboard Repertoire, 7. bindi, eða: Agnestig: Piano Prisma, 1. hefti
  • Tobias Haslinger: Sónatína í C-dúr, 1. þáttur – Úr: Waterman/Harewood: The Young Pianist’s Repertoire, 1. hefti, eða: Frey: Das Neue Sonatinen Buch, 1. hefti, eða: Palmer: The First Sonatina Book
  • Dmitri Kabalevsky: Hægur vals í d-moll op. 39, nr. 13
  • William Gillock: Fiesta – Úr: Accent on Gillock, 4. hefti, eða: Das Tasten Krokodil
  • Mátyás Seiber: Jazz-Etudiette – Úr: Seiber: Leichte Tänze, 1. hefti, eða: Waterman/Harewood: The Young Pianist’s Repertoire, 1. hefti

Dæmi um æfingar

  • Carl Czerny: Æfing nr. 12 í F-dúr – Úr: Czerny/Germer: Æfingar 1. bindi, 1. hluta
  • Fritz Spindler: Æfing í C-dúr (Mountain Climbing) – Úr: Hirschberg: Technic is fun, 1. hefti, bls. 10
Miðpróf

Á miðprófi í píanóleik skal nemendi leika þrjú verk og eina æfingu. Aðrir prófþættir eru tónstigar og hljómar, val og óundirbúinn nótnalestur, auk þess sem gefið er fyrir heildarsvip prófsins.

Miða skal við að heildarpróftími á miðprófi í píanóleik fari ekki fram yfir 45 mínútur. Á prófinu skal nemandi að minnsta kosti flytja eitt verk utanbókar samkvæmt prófþætti 1 eða æfingu samkvæmt prófþætti 2.

Prófþættir eru þessir:

  • Þrjú ólík verk (15 einingar hvert) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Æfing (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Tónstigar og hljómar (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Val (10 einingar). Nemandi velji eitt eftirtalinna viðfangsefna:
    1. Leiki verk að eigin vali af sambærilegri þyngd og önnur miðprófsverkefni.
    2. Spinni einradda út frá gefnu upphafi, hljómferli eða lagi með eða án undirleiks.
    3. Leiki frumsamið verk eða eigin útsetningu.
    4. Hljómsetji stutta laglínu óundirbúið.
  • Óundirbúinn nótnalestur (10 einingar).
    Sjá upplýsingar um prófkröfur í óundirbúnum nótnalestri (pdf-skjal) í píanóleik.
  • Heildarsvipur (5 einingar).
   Dæmi um prófverkefni á miðprófi

Í námskrá eru gefin eftirfarandi dæmi um prófverkefni á miðprófi. Dæmunum er ætlað að skilgreina þyngdarstig prófsins. Fullt eins má velja önnur verkefni af sambærilegri þyngd.

Dæmi um tónverk

  • Johann Sebastian Bach: Lítil prelúdía í C-dúr BWV 933 [nr. 1 af „Sechs kleine Präludien für Anfänger auf dem Klavier“]
  • Muzio Clementi: Sónatína op. 36, nr. 6, 1. eða 2. þáttur [er í ýmsum sónatínuheftum]
  • Ludwig van Beethoven: Bagatella op. 119, nr. 1
  • Edvard Grieg: Alfedans op. 12, nr. 4 – Úr: Ljóðræn lög
  • Claude Debussy: Le petite nègre
  • Atli Heimir Sveinsson: Intermezzo: Dans árstíðanna úr „Dimmalimm“

Dæmi um æfingar

  • Henri Bertini: Æfing í e-moll op. 29, nr. 14 – Úr: Bertini: Æfingar op. 29, eða: First Series of Graded Pianoforte Studies, 4. stig
  • Cornelius Gurlitt: Æfing í F-dúr op. 51, nr. 8 – Úr: Second Series of Graded Pianoforte Studies, 4. stig
Framhaldspróf

Á framhaldsprófi í píanóleik skal nemandi leika þrjú verk og eina æfingu. Aðrir prófþættir eru tónstigar og hljómar, val og óundirbúinn nótnalestur, auk þess sem gefið er fyrir heildarsvip prófsins.

Miða skal við að heildarpróftími á framhaldsprófi í píanóleik fari ekki fram yfir 60 mínútur. Á prófinu skal nemandi að minnsta kosti flytja eitt verk utanbókar samkvæmt prófþætti 1 eða æfingu samkvæmt prófþætti 2.

Prófþættir eru þessir:

  • Þrjú ólík verk (15 einingar hvert) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Æfing (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Tónstigar og hljómar (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Val (10 einingar). Nemandi velji eitt eftirtalinna viðfangsefna:
    1. Leiki verk að eigin vali af sambærilegri þyngd og önnur framhaldsprófsverkefni.
    2. Leiki samleiksverk þar sem hann gegnir veigamiklu hlutverki.
  • Óundirbúinn nótnalestur (10 einingar).
  • Heildarsvipur (5 einingar)
   Dæmi um prófverkefni á framhaldsprófi

Í námskrá eru gefin eftirfarandi dæmi um prófverkefni á framhaldsprófi. Dæmunum er ætlað að skilgreina þyngdarstig prófsins. Fullt eins má velja önnur verkefni af sambærilegri þyngd. Á framhaldsprófi skal nemandi flytja að minnsta kosti eitt viðamikið verk í heild sinni.

Dæmi um tónverk

  • Johann Sebastian Bach: Prelúdía og fúga í E-dúr BWV 854 – Úr: Das wohltemperierte Klavier, 1. bindi
  • Ludwig van Beethoven: Sónata í E-dúr op. 14, nr. 1
  • Johannes Brahms: Rapsódía í g-moll op. 79, nr. 2
  • Fredéric Chopin: Pólonesa í c-moll op. 40, nr. 2
  • Claude Debussy: Prelúdía nr. 2 (Voiles) – Úr: Prelúdíur, 1. bók
  • Hjálmar H. Ragnarsson: Prelúdía nr. 4

Dæmi um æfingar

  • Morits Moszkowsky: Etýða í F-dúr op. 72, nr. 6 – Úr: Moszkowsky: 15 Études de Virtuosité op. 72
  • Carl Czerny: Æfing í As-dúr op. 740, nr. 6 – Úr: Czerny: Art of Finger Dexterity op. 740
Tónleikar

Að loknu framhaldsprófi í píanóleik skal nemandi leika 30-60 mínútna langa efnisskrá á tónleikum innan eða utan skólans. Fyrir frammistöðu á tónleikunum er gefin umsögn en ekki einkunn. Ekki er nauðsynlegt að halda tónleikana á sama skólaári og hljóðfæraprófið fer fram. Séu prófið og tónleikarnir haldnir á sama skólaári er heimilt að nota alla efnisskrá prófsins á tónleikunum. Fari tónleikar fram síðar skal að minnsta kosti helmingur efnisskrárinnar endurnýjaður. Gæta þarf þess að efnisskrá sé fjölbreytt og vel saman sett.