K L A S S Í S K   T Ó N L I S T

Prófþættir í klassískri tónlist

Trompet

Grunnpróf

Á grunnprófi í trompetleik skal nemendi leika þrjú verk og eina æfingu. Aðrir prófþættir eru tónstigar og brotnir hljómar, val og óundirbúinn nótnalestur, auk þess sem gefið er fyrir heildarsvip prófsins.

Miða skal við að heildarpróftími á grunnprófi í trompetleik fari ekki fram yfir 30 mínútur. Á prófinu skal nemandi að minnsta kosti flytja eitt verk utanbókar samkvæmt prófþætti 1 eða æfingu samkvæmt prófþætti 2.

Prófþættir eru þessir:

  • Þrjú ólík verk (15 einingar hvert) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Æfing (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Tónstigar og hljómar (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Val (10 einingar). Nemandi velji eitt eftirtalinna viðfangsefna:
    1. Spinni einradda út frá gefnu upphafi, hljómferli eða lagi, með eða án undirleiks.
    2. Leiki frumsamið verk eða eigin útsetningu.
    3. Leiki stutt alþýðulag eða þjóðlag sem lært hefur verið eftir eyra.
  • Óundirbúinn nótnalestur (10 einingar).
    Sjá upplýsingar um prófkröfur í óundirbúnum nótnalestri (pdf-skjal) í trompetleik.
  • Heildarsvipur (5 einingar).
   Dæmi um prófverkefni á grunnprófi

Í námskrá eru gefin eftirfarandi dæmi um prófverkefni á grunnprófi. Dæmunum er ætlað að skilgreina þyngdarstig prófsins. Fullt eins má velja önnur verkefni af sambærilegri þyngd.

Dæmi um tónverk

  • G. Ph. Telemann: Svíta nr. 1, 2. kafli Allegro – Úr: Wastall: First Repertoire Pieces for Trumpet
  • P. I. Tchaikovsky: Mélodie Antique Française – Úr: Wallace/Miller: The First Book of Trumpet Solos
  • Raymond Warren: Intrada – Úr: New Pieces for Trumpet, 1. hefti
  • James Hook: Sónata nr. 1, 2. kafli Minuetto
  • John Ridgeon: Square Dance – Úr: Six Rhythmic Pieces
  • Edward Gregson: Scherzo, nr. 10 – Úr: Ten Miniatures for Trumpet and Piano

Dæmi um æfingar

  • Æfing nr. 1 – Úr: Hering: The Advancing Trumpeter
  • Æfing nr. 64 – Úr: Clarke: Elementary Studies
Miðpróf

Á miðprófi í trompetleik skal nemendi leika þrjú verk og eina æfingu. Aðrir prófþættir eru tónstigar og brotnir hljómar, val og óundirbúinn nótnalestur, auk þess sem gefið er fyrir heildarsvip prófsins.

Miða skal við að heildarpróftími á miðprófi í trompetleik fari ekki fram yfir 45 mínútur. Á prófinu skal nemandi að minnsta kosti flytja eitt verk utanbókar samkvæmt prófþætti 1 eða æfingu samkvæmt prófþætti 2.

Prófþættir eru þessir:

  • Þrjú ólík verk (15 einingar hvert) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Æfing (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Tónstigar og hljómar (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Val (10 einingar). Nemandi velji eitt eftirtalinna viðfangsefna:
    1. Leiki verk að eigin vali af sambærilegri þyngd og önnur miðprófsverkefni.
    2. Spinni einradda út frá gefnu upphafi, hljómferli eða lagi með eða án undirleiks.
    3. Leiki frumsamið verk eða eigin útsetningu.
  • Óundirbúinn nótnalestur og tónflutningur (10 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
    Sjá upplýsingar um prófkröfur í óundirbúnum nótnalestri (pdf-skjal) í trompetleik.
  • Heildarsvipur (5 einingar).
   Dæmi um prófverkefni á miðprófi

Í námskrá eru gefin eftirfarandi dæmi um prófverkefni á miðprófi. Dæmunum er ætlað að skilgreina þyngdarstig prófsins. Fullt eins má velja önnur verkefni af sambærilegri þyngd.

Dæmi um tónverk

  • A. Corelli: Sónata í F-dúr, 1. og 2. kafli
  • H. Purcell: Sónata í B-dúr – Úr: Lawton: Old English Trumpet Tunes, 1. hefti
  • F. J. Haydn: Konsert, 2. kafli
  • Geoffrey Robbins: Mont Saint-Michel
  • G. Balay: Petite Pièce Concertante – Úr: Beeler (úts.): Solos for the Trumpet Player
  • Allan Street: Rondino

Dæmi um æfingar

  • Æfing nr. 33 – Úr: Hering: 40 Progressive Etudes
  • Æfing nr. 33 – Úr: Endresen: Supplementary Studies
Framhaldspróf

Á framhaldsprófi í trompetleik skal nemandi leika þrjú verk, eina æfingu og útdrætti úr hljómsveitarverkum. Aðrir prófþættir eru tónstigar og brotnir hljómar, val og óundirbúinn nótnalestur, auk þess sem gefið er fyrir heildarsvip prófsins.

Miða skal við að heildarpróftími á framhaldsprófi í trompetleik fari ekki fram yfir 60 mínútur. Á prófinu skal nemandi að minnsta kosti flytja eitt verk utanbókar samkvæmt prófþætti 1 eða æfingu samkvæmt prófþætti 2.

Prófþættir eru þessir:

  • Þrjú ólík verk (12 einingar hvert) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Æfing (12 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Útdrættir úr hljómsveitarverkum (12 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Tónstigar og hljómar (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Val (10 einingar). Nemandi velji eitt eftirtalinna viðfangsefna:
    1. Leiki verk að eigin vali af sambærilegri þyngd og önnur framhaldsprófsverkefni.
    2. Leiki samleiksverk þar sem hann gegnir veigamiklu hlutverki.
    3. Leiki tónverk á annað hljóðfæri úr sömu fjölskyldu og aðalhljóðfæri.
  • Óundirbúinn nótnalestur og tónflutningur (10 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Heildarsvipur (5 einingar)
   Dæmi um prófverkefni á framhaldsprófi

Í námskrá eru gefin eftirfarandi dæmi um prófverkefni á framhaldsprófi. Dæmunum er ætlað að skilgreina þyngdarstig prófsins. Fullt eins má velja önnur verkefni af sambærilegri þyngd.

Dæmi um tónverk

  • J. G. B. Neruda: Konsert í Es-dúr, 1. kafli
  • J. N. Hummel: Konsert, 1. kafli
  • J. Guy Ropartz: Andante et Allegro
  • Herbert L. Clarke: Karnival í Feneyjum – Úr: Characteristic Studies
  • Karl O. Runólfsson: Sónata, 1. eða 3. kafli
  • Eugène Bozza: Badinage

Dæmi um útdrætti úr hljómsveitarverkum

  • Beethoven: Forleikur að óperunni Leónóru nr. 2 eða 3
  • Moussorgsky / Ravel: Myndir á sýningu, inngangur
  • Prokoffief: Leutinant Kije, 1. kornett
  • Brahms: Háskólaforleikur
  • Rimsky-Korsakov: Scheherazade
  • Respighi: Furur Rómaborgar, baksviðssóló

Dæmi um æfingar

  • Æfing nr. 31 – Úr: Brandt, Vasilly: 34 Studies
  • Advanced Etude nr. 12 – Úr: Vizzutti: Melodic Studie
Tónleikar

Að loknu framhaldsprófi í trompetleik skal nemandi leika 30-60 mínútna langa efnisskrá á tónleikum innan eða utan skólans. Fyrir frammistöðu á tónleikunum er gefin umsögn en ekki einkunn. Ekki er nauðsynlegt að halda tónleikana á sama skólaári og hljóðfæraprófið fer fram. Séu prófið og tónleikarnir haldnir á sama skólaári er heimilt að nota alla efnisskrá prófsins á tónleikunum. Fari tónleikar fram síðar skal að minnsta kosti helmingur efnisskrárinnar endurnýjaður. Gæta þarf þess að efnisskrá sé fjölbreytt og vel saman sett.