K L A S S Í S K   T Ó N L I S T

Prófþættir í klassískri tónlist

Túba

Grunnpróf

Á grunnprófi í túbuleik skal nemendi leika þrjú verk og eina æfingu. Aðrir prófþættir eru tónstigar og brotnir hljómar, val og óundirbúinn nótnalestur, auk þess sem gefið er fyrir heildarsvip prófsins.

Miða skal við að heildarpróftími á grunnprófi í túbuleik fari ekki fram yfir 30 mínútur. Á prófinu skal nemandi að minnsta kosti flytja eitt verk utanbókar samkvæmt prófþætti 1 eða æfingu samkvæmt prófþætti 2.

Prófþættir eru þessir:

  • Þrjú ólík verk (15 einingar hvert) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Æfing (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Tónstigar og hljómar (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Val (10 einingar). Nemandi velji eitt eftirtalinna viðfangsefna:
    1. Spinni einradda út frá gefnu upphafi, hljómferli eða lagi, með eða án undirleiks.
    2. Leiki frumsamið verk eða eigin útsetningu.
    3. Leiki stutt alþýðulag eða þjóðlag sem lært hefur verið eftir eyra.
  • Óundirbúinn nótnalestur (10 einingar).
    Sjá upplýsingar um prófkröfur í óundirbúnum nótnalestri (pdf-skjal) í túbuleik.
  • Heildarsvipur (5 einingar).
   Dæmi um prófverkefni á grunnprófi

Í námskrá eru gefin eftirfarandi dæmi um prófverkefni á grunnprófi. Dæmunum er ætlað að skilgreina þyngdarstig prófsins. Fullt eins má velja önnur verkefni af sambærilegri þyngd.

Dæmi um tónverk

  • F. Schubert: Who is Sylvia – Úr: The Canadian Brass Intermediate Tuba Solos
  • W. A. Mozart: O Isis and Osiris – Úr: Wekselblatt: Solos for the Tuba Player
  • J. P. Rameau: La Villageoise – Úr: Wekselblatt: First Solos for the Tuba Player
  • G. Jacob: The Corsair Bold – Úr: 4 Bagatelles for Tuba
  • F. Björn: Alley Cat
  • D. Runswick: Slinkenpop – Úr: Up Front Album, 2. hefti

Dæmi um æfingar

  • Æfing nr. 13 – Úr: Endresen: Supplementary Studies
  • Æfing nr. 36 – Úr: Getchell: Practical Studies, 1. hefti
Miðpróf

Á miðprófi í túbuleik skal nemendi leika þrjú verk og eina æfingu. Aðrir prófþættir eru tónstigar og brotnir hljómar, val og óundirbúinn nótnalestur, auk þess sem gefið er fyrir heildarsvip prófsins.

Miða skal við að heildarpróftími á miðprófi í túbuleik fari ekki fram yfir 45 mínútur. Á prófinu skal nemandi að minnsta kosti flytja eitt verk utanbókar samkvæmt prófþætti 1 eða æfingu samkvæmt prófþætti 2.

Prófþættir eru þessir:

  • Þrjú ólík verk (15 einingar hvert) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Æfing (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Tónstigar og hljómar (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Val (10 einingar). Nemandi velji eitt eftirtalinna viðfangsefna:
    1. Leiki verk að eigin vali af sambærilegri þyngd og önnur miðprófsverkefni.
    2. Spinni einradda út frá gefnu upphafi, hljómferli eða lagi með eða án undirleiks.
    3. Leiki frumsamið verk eða eigin útsetningu.
  • Óundirbúinn nótnalestur (10 einingar).
    Sjá upplýsingar um prófkröfur í óundirbúnum nótnalestri (pdf-skjal) í túbuleik.
  • Heildarsvipur (5 einingar).
   Dæmi um prófverkefni á miðprófi

Í námskrá eru gefin eftirfarandi dæmi um prófverkefni á miðprófi. Dæmunum er ætlað að skilgreina þyngdarstig prófsins. Fullt eins má velja önnur verkefni af sambærilegri þyngd.

Dæmi um verk

  • J. S. Bach: Two Bourrés – Úr: Wekselblatt (úts.): Solos for The Tuba Player
  • L. Bernstein: Waltz for Mippy III – Úr: Wekselblatt (úts.): Solos for The Tuba Player
  • A. Capuzzi: Andante
  • E. Clews: Runabout – Úr: Clews, Eileen: Quintessence
  • Parkhurst: Variations on Temperence Theme – Úr: Fletcher: Tuba Solos, 1. hefti
  • D. Uber: Romance

Dæmi um æfingar

  • Æfing nr. 4 – Úr: Bordogni: 43 Bel Canto Studies for Tuba
  • Æfing nr. 28 – Úr: Gower / Voxman: Advanced Method, 2. hefti
Framhaldspróf

Á framhaldsprófi í túbuleik skal nemandi leika þrjú verk, eina æfingu og útdrætti úr hljómsveitarverkum. Aðrir prófþættir eru tónstigar og brotnir hljómar, val og óundirbúinn nótnalestur, auk þess sem gefið er fyrir heildarsvip prófsins.

Miða skal við að heildarpróftími á framhaldsprófi í túbuleik fari ekki fram yfir 60 mínútur. Á prófinu skal nemandi að minnsta kosti flytja eitt verk utanbókar samkvæmt prófþætti 1 eða æfingu samkvæmt prófþætti 2.

Prófþættir eru þessir:

  • Þrjú ólík verk (12 einingar hvert) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Æfing (12 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Útdrættir úr hljómsveitarverkum (12 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Tónstigar og hljómar (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Val (10 einingar). Nemandi velji eitt eftirtalinna viðfangsefna:
    1. Leiki verk að eigin vali af sambærilegri þyngd og önnur framhaldsprófsverkefni.
    2. Leiki samleiksverk þar sem hann gegnir veigamiklu hlutverki.
  • Óundirbúinn nótnalestur (10 einingar).
  • Heildarsvipur (5 einingar).
   Dæmi um prófverkefni á framhaldsprófi

Í námskrá eru gefin eftirfarandi dæmi um prófverkefni á framhaldsprófi. Dæmunum er ætlað að skilgreina þyngdarstig prófsins. Fullt eins má velja önnur verkefni af sambærilegri þyngd.

Dæmi um tónverk

  • M. Arnold: Fantasy for Tuba [einleiksverk]
  • A. Capuzzi: Andante og Rondo
  • C. Grundman: Tuba Rhapsody
  • W. Hartley: Svíta
  • J. Stewart: „Tuba“
  • Schumann / Bell: The Jolly Farmer goes to Town

Dæmi um útdrætti úr hljómsveitarverkum

  • H. Berlioz: Symphonie fantastique
  • G. Mahler: Sinfónía nr. 1
  • S. Prokoffiev: Rómeó og Júlía – svíta nr. 2
  • R. Strauss: Till Eulenspiegels Lustige Streiche
  • P. I. Tchaikovskij: Sinfónía nr. 4
  • R. Wagner: Forleikurinn að Meistarasöngvurunum

Dæmi um æfingar

  • Æfing nr. 51 – Úr: Blazhewhich: 70 Studies for BB flat Tuba, 2. hefti
  • Æfing nr. 27 – Úr: Kopprasch: Sixty Selected Studies for Tuba
Tónleikar

Að loknu framhaldsprófi í túbuleik skal nemandi leika 30-60 mínútna langa efnisskrá á tónleikum innan eða utan skólans. Fyrir frammistöðu á tónleikunum er gefin umsögn en ekki einkunn. Ekki er nauðsynlegt að halda tónleikana á sama skólaári og hljóðfæraprófið fer fram. Séu prófið og tónleikarnir haldnir á sama skólaári er heimilt að nota alla efnisskrá prófsins á tónleikunum. Fari tónleikar fram síðar skal að minnsta kosti helmingur efnisskrárinnar endurnýjaður. Gæta þarf þess að efnisskrá sé fjölbreytt og vel saman sett.