K L A S S Í S K   T Ó N L I S T

Prófþættir í klassískri tónlist

Víóla

Grunnpróf

Á grunnprófi í víóluleik skal nemendi leika þrjú verk og eina æfingu. Aðrir prófþættir eru tónstigar og brotnir hljómar, val og óundirbúinn nótnalestur, auk þess sem gefið er fyrir heildarsvip prófsins.

Miða skal við að heildarpróftími á grunnprófi í víóluleik fari ekki fram yfir 30 mínútur. Á prófinu skal nemandi að minnsta kosti flytja eitt verk utanbókar samkvæmt prófþætti 1 eða æfingu samkvæmt prófþætti 2.

Prófþættir eru þessir:

  • Þrjú ólík verk (15 einingar hvert) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Æfing (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Tónstigar og hljómar (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Val (10 einingar). Nemandi velji eitt eftirtalinna viðfangsefna:
    1. Spinni einradda út frá gefnu upphafi, hljómferli eða lagi, með eða án undirleiks.
    2. Leiki frumsamið verk eða eigin útsetningu.
    3. Leiki stutt alþýðulag eða þjóðlag sem lært hefur verið eftir eyra.
  • Óundirbúinn nótnalestur (10 einingar).
    Sjá upplýsingar um prófkröfur í óundirbúnum nótnalestri (pdf-skjal) í víóluleik.
  • Heildarsvipur (5 einingar).
   Dæmi um prófverkefni á grunnprófi

Í námskrá eru gefin eftirfarandi dæmi um prófverkefni á grunnprófi. Dæmunum er ætlað að skilgreina þyngdarstig prófsins. Fullt eins má velja önnur verkefni af sambærilegri þyngd.

Dæmi um tónverk

  • J. S. Bach: Gavotta – Úr: Album of Classical Pieces
  • W. A. Mozart: Larghetto – Úr: A Second Year Classical Album for Viola Players
  • G. Fauré: Berceuse
  • F. Seitz: Konsert nr. 2, 3. þáttur – Úr: Suzuki, S.: Suzuki Viola School, 4. hefti
  • H. Purcell: Sónata í g-moll, 2. þáttur
  • G. Ph. Telemann: Sónata í a-moll, 2. þáttur

Dæmi um æfingar

  • Æfing nr. 5 – Úr: Kayser: Etýður op. 20
  • Æfing nr. 17 – Úr: Wohlfart: 60 Studien op. 45, 1. hefti
Miðpróf

Á miðprófi í víóluleik skal nemendi leika þrjú verk og eina æfingu. Aðrir prófþættir eru tónstigar og brotnir hljómar, val og óundirbúinn nótnalestur, auk þess sem gefið er fyrir heildarsvip prófsins.

Miða skal við að heildarpróftími á miðprófi í víóluleik fari ekki fram yfir 45 mínútur. Á prófinu skal nemandi að minnsta kosti flytja eitt verk utanbókar samkvæmt prófþætti 1 eða æfingu samkvæmt prófþætti 2.

Prófþættir eru þessir:

  • Þrjú ólík verk (15 einingar hvert) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Æfing (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Tónstigar og hljómar (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Val (10 einingar). Nemandi velji eitt eftirtalinna viðfangsefna:
    1. Leiki verk að eigin vali af sambærilegri þyngd og önnur miðprófsverkefni.
    2. Spinni einradda út frá gefnu upphafi, hljómferli eða lagi með eða án undirleiks.
    3. Leiki frumsamið verk eða eigin útsetningu.
  • Óundirbúinn nótnalestur (10 einingar).
    Sjá upplýsingar um prófkröfur í óundirbúnum nótnalestri (pdf-skjal) í víóluleik.
  • Heildarsvipur (5 einingar).
   Dæmi um prófverkefni á miðprófi

Í námskrá eru gefin eftirfarandi dæmi um prófverkefni á miðprófi. Dæmunum er ætlað að skilgreina þyngdarstig prófsins. Fullt eins má velja önnur verkefni af sambærilegri þyngd.

Dæmi um tónverk

  • A. Glasunow: Elegie op. 44
  • H. Eccles: Sónata í g-moll, 1. og 2. þáttur
  • S. Rachmaninov: Vocalise op. 34, nr. 14
  • P. Hindemith: Trauermusik [víóla + strengjasveit/píanó]
  • L. E. Larsson: Concertino op. 45 nr. 9, 1. þáttur [víóla + strengjasveit/píanó]
  • J. Chr. Bach: Konsert í c-moll, 1. þáttur

Dæmi um æfingar

  • Æfing nr. 8 – Úr: Kreutzer: 42 Studies
  • Æfing nr. 3 – Úr: Mazas: Etudes Speciales op. 36, 1. hefti
Framhaldspróf

Á framhaldsprófi í víóluleik skal nemandi leika þrjú verk, eina æfingu og útdrætti úr hljómsveitarverkum. Aðrir prófþættir eru tónstigar og brotnir hljómar, val og óundirbúinn nótnalestur, auk þess sem gefið er fyrir heildarsvip prófsins.

Miða skal við að heildarpróftími á framhaldsprófi í víóluleik fari ekki fram yfir 60 mínútur. Á prófinu skal nemandi að minnsta kosti flytja eitt verk utanbókar samkvæmt prófþætti 1 eða æfingu samkvæmt prófþætti 2.

Prófþættir eru þessir:

  • Þrjú ólík verk (12 einingar hvert) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Æfing (12 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Útdrættir úr hljómsveitarverkum (12 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Tónstigar og hljómar (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Val (10 einingar). Nemandi velji eitt eftirtalinna viðfangsefna:
    1. Leiki verk að eigin vali af sambærilegri þyngd og önnur framhaldsprófsverkefni.
    2. Leiki samleiksverk þar sem hann gegnir veigamiklu hlutverki.
  • Óundirbúinn nótnalestur (10 einingar).
  • Heildarsvipur (5 einingar).
   Dæmi um prófverkefni á framhaldsprófi

Í námskrá eru gefin eftirfarandi dæmi um prófverkefni á framhaldsprófi. Dæmunum er ætlað að skilgreina þyngdarstig prófsins. Fullt eins má velja önnur verkefni af sambærilegri þyngd.

Dæmi um tónverk

  • J. S. Bach: Sarabande og Gigue úr svítu nr. 3 í C-dúr
  • K. Stamitz: Konsert í D-dúr, 1. þáttur með kadensu
  • Þorkell Sigurbjörnsson: Sex íslensk þjóðlög
  • J. Brahms: Víólusónata í f-moll, 1. þáttur
  • Jón Þórarinsson: Sónata
  • F. A. Hoffmeister: Konsert í D-dúr, 1. þáttur með kadensu

Dæmi um útdrætti úr hljómsveitarverkum

  • G. Rossini: Úr forleik „La Gazza Ladra“ – Úr: Vieland: Orchestral Excerpts from the Symphonic Repertoire for Viola, 2. hefti, bls. 19
  • J. Brahms: Sinfónía nr. 2 [fyrsta dæmið] – Úr: Vieland: Orchestral Excerpts from the Symphonic Repertoire for Viola, 2. hefti, bls. 8
  • P. I. Tchaikovsky: Symphonie Pathétique op. 74 – Úr: Vieland: Orchestral Excerpts from the Symphonic Repertoire for Viola, 2. hefti, bls. 34
  • L. van Beethoven: Sinfónía nr. 5 – Úr: Vieland: Orchestral Excerpts from the Symphonic Repertoire for Viola, 1. hefti, bls. 4–5
  • W. A. Mozart: Sinfónía nr. 40 í g-moll – Úr: Vieland: Orchestral Excerpts from the Symphonic Repertoire for Viola, 2. hefti, bls. 26
  • A. Dvořák: Sinfónía nr. 4 – Úr: Vieland: Orchestral Excerpts from the Symphonic Repertoire for Viola, 3. hefti, bls. 17–18

Dæmi um æfingar

  • Æfing nr. 17 – Úr: Campagnoli: 41 Caprices op. 22 for Viola
  • Æfing nr. 2 – Úr: Rode: 24 Capricen
Tónleikar

Að loknu framhaldsprófi í víóluleik skal nemandi leika 30-60 mínútna langa efnisskrá á tónleikum innan eða utan skólans. Fyrir frammistöðu á tónleikunum er gefin umsögn en ekki einkunn. Ekki er nauðsynlegt að halda tónleikana á sama skólaári og hljóðfæraprófið fer fram. Séu prófið og tónleikarnir haldnir á sama skólaári er heimilt að nota alla efnisskrá prófsins á tónleikunum. Fari tónleikar fram síðar skal að minnsta kosti helmingur efnisskrárinnar endurnýjaður. Gæta þarf þess að efnisskrá sé fjölbreytt og vel saman sett.