R Y T M Í S K T Ó N L I S T
Á grunnprófi skal nemandi leika tvö aðallög. Auk þess skal hann leggja fram safnlista með fjórum lögum og velur prófdómari eitt þeirra til flutnings. Alls eru því undirbúin sex lög og skulu þau öll vera í samræmi við kröfur námskrár. Aðrir prófþættir eru æfing, tónstigar og hljómar, val og óundirbúinn nótnalestur auk þess sem gefið er fyrir heildarsvip prófsins.
Aðallög og safnlistalög skulu flutt með undirleik. Á grunnprófi er heimilt að notast við undirleik kennara eða hljóðritaðan undirleik.
Á grunnprófi skulu bassanemendur að lágmarki flytja laglínu í öðru tveggja aðallaga og helmingi safnlistalaga. Ekki er nauðsynlegt að kontrabassanemendur flytji laglínur í öðrum lögum. Tilgreina skal í prófgögnum í hvaða lögum próftaki flytur laglínu.
Miða skal við að heildartími á grunnprófi fari ekki fram yfir 30 mínútur. Á prófinu skal nemandi flytja öll lög samkvæmt prófþætti 1 utanbókar. Sama á við um tónstiga og hljóma samkvæmt prófþætti 3. Annað prófefni má leika eftir nótum.
Prófþættir eru þessir:
Á miðprófi skal nemandi leika tvö aðallög. Auk þess skal hann leggja fram lista með fjórtán lögum og velur prófdómari eitt þeirra til flutnings. Alls eru því undirbúin sextán lög og skulu þau öll vera í samræmi við kröfur námskrár. Miðað er við að a.m.k. helmingur laga samkvæmt prófþætti 1 sé djasstónlist. Aðrir prófþættir eru upprit, tónstigar og hljómar, val og óundirbúinn nótnalestur auk þess sem gefið er fyrir heildarsvip prófsins.
Á miðprófi skulu bassanemendur að lágmarki flytja laglínu í öðru tveggja aðallaga og helmingi safnlistalaga. Ekki er nauðsynlegt að kontrabassanemendur flytji laglínur í öðrum lögum. Tilgreina skal í prófgögnum í hvaða lögum próftaki flytur laglínu.
Miða skal við að heildartími á miðprófi fari ekki fram yfir 50 mínútur. Á prófinu skal nemandi flytja öll lög samkvæmt prófþætti 1 utanbókar. Sama á við um upprit samkvæmt prófþætti 2 og tónstiga og hljóma samkvæmt prófþætti 4. Einnig skal leika valverkefni samkvæmt prófþætti 5 b) utanbókar. Önnur prófverkefni, þ.e. æfingu samkvæmt prófþætti 3 og val samkvæmt prófþætti 5 a) og 5 c), má leika eftir nótum. Eðli málsins samkvæmt er óundirbúinn nótnalestur samkvæmt prófþætti 6 alltaf eftir nótum.
Prófþættir eru þessir:
Á framhaldsprófi skal nemandi leika tvö aðallög. Auk þess skal hann leggja fram lista með 32 lögum og velur prófdómari eitt þeirra til flutnings. Alls eru því undirbúin 34 lög og skulu þau öll vera í samræmi við kröfur námskrár. Miðað er við að a.m.k. helmingur laga samkvæmt prófþætti 1 sé djasstónlist. Aðrir prófþættir eru upprit, æfing, tónstigar og hljómar, val og óundirbúinn nótnalestur, auk þess sem gefið er fyrir heildarsvip prófsins.
Á framhaldsprófi skulu bassanemendur að lágmarki flytja laglínu í öðru tveggja aðallaga og helmingi safnlistalaga. Ekki er nauðsynlegt að kontrabassanemendur flytji laglínur í öðrum lögum. Tilgreina skal í prófgögnum í hvaða lögum próftaki flytur laglínu.
Miða skal við að heildartími á framhaldsprófi fari ekki fram yfir 60 mínútur. Á prófinu skal nemandi flytja öll lög samkvæmt prófþætti 1 utanbókar. Sama á við um upprit samkvæmt prófþætti 2 og tónstiga og hljóma samkvæmt prófþætti 4. Einnig skal leika valverkefni samkvæmt prófþætti 5 b) og 5 c) utanbókar. Önnur prófverkefni, þ.e. æfingu samkvæmt prófþætti 3 og val samkvæmt prófþætti 5 a), má leika eftir nótum. Eðli málsins samkvæmt er óundirbúinn nótnalestur samkvæmt prófþætti 6 alltaf eftir nótum.
Prófþættir eru þessir:
Að loknu framhaldsprófi í hljóðfæraleik í rytmískri tónlist skal nemandi halda tónleika með u.þ.b. 60 mínútna langri efnisskrá. Alla jafna er gert ráð fyrir að tónleikarnir séu samfelldir, án hlés. Efnistök eru frjáls og engar stílrænar takmarkanir eru gerðar um efnisskrá en áhersla lögð á að hún sé sannfærandi og persónuleg, fjölbreytt og krefjandi. Ekki er heldur gerð krafa um tengingu við efnisskrá undangengins framhaldsprófs en heimilt er að nota hana eða hluta hennar á tónleikunum. Þá er heimilt að nota eigin tónsmíðar á tónleikunum, þær geta verið hluti efnisskrár eða hugsanlega getur efnisskrá alfarið byggst á eigin tónsmíðum. Megináherslan er á að nemandi undirbúi og flytji efnisskrá sem er sannfærandi músíkölsk upplifun frá upphafi til enda. Nemandi ber ábyrgð á framsetningu tónlistarinnar, þ.m.t. samsetningu hljómsveitar og frammistöðu meðleikara. Fyrir frammistöðu á tónleikunum er gefin umsögn en ekki einkunn. Ekki er nauðsynlegt að halda tónleikana á sama skólaári og hljóðfæraprófið fer fram.